Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Bitcoin fellur eftir sjald­gæfa sölu stærsta stuðnings­mannsins

  • What: Bitcoin price drops after major holder sells small portion
  • Impact: Market volatility due to investor activity
Read Full Article →

Verð á bitcoin hefur fallið skarpt eftir að Stra­tegy, félag Michaels Saylor og stærsti skráði fyrir­tækja­eig­andi raf­myntarinnar, seldi hluta af risastórri bitcoin-eign sinni. Sam­kvæmt Financial Times stefnir bitcoin nú í mestu vikulækkun frá nóvember 2022, þegar fall FTX skók raf­mynta­markaðinn. Verðið lækkaði um allt að 5,5% á fimmtu­dag, niður í 61.344 dali, áður en það rétti aðeins úr kútnum. Lækkunin í vikunni nemur tæp­lega 14%. Það sem olli óróanum var ekki stærð sölunnar sjál­frar heldur tákn­rænt gildi hennar. Stra­tegy seldi aðeins 32 bitcoin í síðustu viku fyrir sam­tals 2,5 milljónir dala. Það er smáræði í saman­burði við eigna­safn félagsins, sem hafði fyrir söluna keypt 843.738 bitcoin í 110 við­skiptum fyrir nærri 64 milljarða dala frá því félagið hóf kaup sín í ágúst 2020. Salan var aðeins önnur sala félagsins frá því það hóf að safna bitcoin og sú fyrsta í meira en þrjú ár. Hún vakti því spurningar meðal fjár­festa um hvort fyrir­tækið, sem hefur verið helsti boðberi þeirrar stefnu að halda bitcoin til eilífðar, gæti neyðst til frekari sölu. Stra­tegy sagði að salan hefði verið gerð til að greiða arð eða vaxta­greiðslur til eig­enda for­gangs­hluta­bréfa félagsins. Saylor hefur fjár­magnað bitcoin-kaup félagsins með skulda­bréfum, breytan­legum skulda­bréfum og hluta­bréfa­tengdum fjár­mála­gerningum. Þegar bitcoin hækkar virkar líkanið vel. Þegar verðið lækkar aukast spurningar um hversu sjálf­bært það sé. Peter Schiff, fjár­mála­skýrandi og harður gagn­rýnandi bitcoin, sagði á X að það væri ekki litla salan sjálf sem hefði hrætt markaðinn heldur hug­myndin um að hún gæti verið sú fyrsta af mörgum og miklu stærri sölum. Stra­tegy hefur árum saman talað fyrir svo­kallaðri „hodl“-nálgun, orða­leik úr heimi raf­mynta sem þýðir að halda eigninni hvað sem á dynur. Saylor hefur sjálfur haldið áfram að tala um bitcoin og sagði ný­lega verð­fallið vera tækifæri. Markaðurinn virðist þó ekki sann­færður. Bitcoin hefur verið undir þrýstingi á sama tíma og al­mennir fjár­festar hafa í auknum mæli snúið sér aftur að hluta­bréfa­markaði, sér­stak­lega tækni­fyrir­tækjum sem hafa notið góðs af gervi­greindaræðinu. Financial Times hefur eftir Jasper de Maere, sér­fræðingi hjá raf­mynta­við­skipta­fyrir­tækinu Win­t­ermute, að smærri fjár­festar hafi í raun horfið af raf­mynta­markaði og fært sig yfir í hluta­bréf. Verð bitcoin fór niður í rúm­lega 60.000 dali í febrúar, sem var lægsta verð í 17 mánuði. Það var nokkuð undir stöðunni fyrir for­seta­kosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember 2024, þegar Donald Trump hafði lofað að gera Bandaríkin að höfuð­borg raf­mynta í heiminum. Eftir kosningarnar rauk bitcoin nærri 90% og fór yfir 125.000 dali í október í fyrra, áður en lækkunar­hrinan hófst. Fleira hefur dregið úr áhuga fjár­festa á raf­myntum. Löggjöf um stafrænar eignir hefur strandað í öldunga­deild Bandaríkjaþings eftir and­stöðu banka­geirans, þrátt fyrir langar viðræður að tjalda­baki. Þá hefur at­hygli fjár­festa færst að stærri sögum á hluta­bréfa­markaði, meðal annars væntan­legri skráningu SpaceX og mögu­legum skráningum gervi­greindar­fyrir­tækja á borð við Ant­hropic og OpenAI. Sjá einnig Vilja hægja á gervi­greindar­kapp­hlaupinu Fyrir Stra­tegy er staðan viðkvæm. Félagið hefur byggt upp ein­staka stöðu sem bitcoin-fjár­festingarfélag á hluta­bréfa­markaði. Það hefur laðað að sér fjár­festa sem vilja fá óbeina bitcoin-áhættu í gegnum skráð hluta­bréf. En það líkan verður brot­hættara þegar bitcoin lækkar og greiðslu­byrði vegna fjár­mögnunar þarf að mæta Síðustu tíu mánuði hefur Saylor safnað 10,5 milljörðum dala með út­gáfu sér­staks for­gangs­hluta­bréfs sem greiðir 11,5% ár­legan arð en veitir ekki hlut­deild í hækkun hluta­bréfa­verðs. Salan í síðustu viku var gerð til að standa undir greiðslum til eig­enda slíkra bréfa, sam­kvæmt skráningu hjá bandaríska verðbréfa­eftir­litinu. Þótt 32 bitcoin séu lítil sala miðað við eigna­safn Stra­tegy hefur hún breytt um­ræðunni. Fyrir trúaða bitcoin-fjár­festa var Stra­tegy tákn­mynd þeirrar hug­myndar að best væri að kaupa og aldrei selja.

Share this article