Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Guðjón Valur þjálfari ársins í annað sinn

Read Full Article →

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach í Þýskalandi, hefur verið kjörinn þjálfari ársins í þýsku Bundesligunni. Það eru þjálfarar og framkvæmdastjórar liðanna í deildinni sem velja. Gummersbach hefur leikið gríðarlega vel í vetur og velgt risaliðum deildarinnar vel undir uggum. Þegar einni umferð er ólokið er liðið í 4. sæti deildarinnar og verður það sama hvað gerist í lokaumferðinni. Þetta er í annað sinn sem Guðjón Valur er kjörinn þjálfari ársins. Fyrra skiptið var 2023 þegar hann kom Gummersbach í 10. sæti deildarinnar sem nýliðar. Árið áður vann liðið 2. deild og var Guðjón Valur þá þjálfari ársins í þeirri deild. Guðjón Valur SigurðssonImago / IMAGO / Beautiful Sports

Share this article