Guðjón Valur Sigurðsson og þýska úrvalsdeildarfélagið Gummersbach hafa komist að samkomulagi um nýjan samning þannig að Guðjón muni þjálfa liðið til 2029 hið minnnsta. Fyrri samningur átti að renna út eftir komandi tímabil. Guðjón Valur tók við liðinu 2020 sem var þá í næstefstu deild. Tveimur árum síðar kom hann því upp í efstu deild og þar hefur liðið verið síðan. Hann var kjörinn þjálfari ársins í efstu deild 2023 og aftur í vor eftir að hafa stýrt liðinu í fjórða sæti. Í tilkynningu Gummersbach segir framkvæmdastjórinn félagsins að allir séu hæstánægðir með nýja samninginn enda hafi verið mikill áhugi frá fleiri liðum á Guðjóni Val, sem sjálfur segir að Gummersbach sé orðið miklu meira en bara vinnustaður hans, hann og fjölskylda hans líti á Gummersbach sem heimili. Landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson leika með Gummersbach og þá gekk hinn 19 ára Garðar Ingi Sindrason til liðs við félagið frá FH í sumar. Þýska úrvalsdeildin byrjar á morgun. Fyrsti leikur Gummersbach er gegn ríkjandi meisturum Magdeburgar á heimavelli á sunnudag og Guðjón Valur og félagar fá því Gísla Þorgeir Kristjánsson, Elvar Örn Jónsson og Ómar Inga Magnússon í heimsókn.