Bandaríska hagkerfið bætti við sig 172 þúsund störfum í maí samkvæmt nýjum tölum bandarísku vinnumarkaðsstofnunarinnar, umtalsvert meira en spáð var. Hagfræðingar sem tóku þátt í könnun Bloomberg höfðu spáð 85 þúsund nýjum störfum. Jafnframt færði stofnunin upp tölur fyrir mars og apríl um samtals 93 þúsund störf. Atvinnuleysi mælist áfram 4,3%. Í umfjöllun Financial Times segir að hagtölurnar gefi til kynna að vinnumarkaðurinn sé að taka við sér eftir að hafa kólnað í fyrra. Ávöxtunarkrafa bandarískra ríkisskuldabréfa hækkaði og Bandaríkjadalurinn styrktist eftir birtingu vinnumarkaðsskýrslunnar, sem rekja má til þess að markaðsaðilar telja nú meiri líkur á að Seðlabanki Bandaríkjanna hækki vexti um 0,25 prósentustig fyrir desember næstkomandi. Verðlagning á skuldabréfamarkaði í aðdraganda birtingar skýrslunnar gaf til kynna að markaðsaðilar áttu ekki von á slíkri stýrivaxtahækkun fyrr en í apríl á næsta ári. Hlutabréfavísitalan Nasdaq Composite, sem inniheldur mörg tæknifyrirtæki, hefur lækkað um 2,6% í dag, þegar fréttin er skrifuð. Lækkunin er að stórum hluta rakin til væntinga um hærri stýrivexti.