Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bandaríkin bættu við 162 þúsund störfum í ágúst

Read Full Article →

Bandaríska hag­kerfið bætti við 162 þúsund nýjum störfum í ágúst, langt um­fram væntingar markaðarins. At­vinnu­leysi stóð óbreytt í 4,1% og bendir nýjasta vinnu­markaðs­skýrslan til þess að bandaríski vinnu­markaðurinn sé sterkari en óttast hafði verið eftir veikari sumar­mánuði. Hag­fræðingar sem The Wall Street Journal hafði rætt við höfðu að meðaltali gert ráð fyrir aðeins 53 þúsund nýjum störfum í ágúst. Niður­staðan reyndist því meira en þre­falt betri en spáð hafði verið. Fyrri tölur voru einnig færðar upp. Nú er talið að 21 þúsund störf hafi bæst við í júlí, en áður hafði verið talið að störfum hefði fækkað um 23 þúsund. Þá var fjölgun starfa í júní endur­skoðuð úr 20 þúsund í 31 þúsund. At­vinnu­leysi hélt sér í 4,1%, sem er enn lágt í sögu­legu sam­hengi og bendir til þess að vinnu­markaðurinn standi al­mennt sterkur. Sterk vinnu­markaðstala gæti einnig haft áhrif á vaxtaákvarðanir bandaríska seðla­bankans síðar í mánuðinum. Þar sem at­vinnu­markaðurinn sýnir áfram styrk getur seðla­bankinn ein­beitt sér frekar að verðbólgu þegar næstu skref eru metin. Launaþróunin var þó ekki jafn sterk. Meðal­laun á klukku­stund hækkuðu um 3,1% frá fyrra ári á meðan verðbólga mældist 3,4% í júlí. Kaup­máttur launa hefur því verið undir nokkrum þrýstingi. Fjölgun starfa dreifðist nokkuð víða. Mest fjölgaði störfum á veitinga- og drykkjar­stöðum, um 59 þúsund, en sá geiri hafði tapað störfum tvo mánuðina þar á undan. Þá fjölgaði störfum í mennta­kerfi sveitarfélaga um 42 þúsund eftir mikla fækkun mánuðinn áður. Störfum fjölgaði einnig í fram­leiðslu og heil­brigðisþjónustu. Á móti fækkaði þeim í upp­lýsingatækni og fjár­mála­starf­semi, sem eru meðal þeirra greina sem helst eru taldar geta orðið fyrir áhrifum af aukinni sjálf­virkni­væðingu og gervi­greind. WSJ bendir jafn­framt á að bandaríski vinnu­markaðurinn sé að færast inn í nýtt jafn­vægi þar sem ekki þurfi lengur jafn­marga nýja starfs­menn í hverjum mánuði til að halda at­vinnu­leysi stöðugu. Þar vegi bæði hægari fjölgun vinnu­afls og minni aðflutningur inn­flytj­enda. Hag­fræðingar Bank of America meta að um 20 þúsund ný störf á mánuði geti nú nægt til að halda at­vinnu­leysi stöðugu. Til saman­burðar fjölgaði störfum að meðaltali um 120 þúsund á mánuði á 25 árum fyrir heims­far­aldurinn. Þótt fyrir­tæki séu því tregari til að ráða en áður eru upp­sagnir jafn­framt fáar. Vinnu­markaðurinn ein­kennist þannig af því að fólk sem þegar er í starfi stendur til­tölu­lega vel, á meðan erfiðara getur verið fyrir nýja um­sækj­endur og fólk sem vill skipta um starf að komast inn.

Share this article