Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Guðmundur Ingi vill sjá breytingar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.6.2026 | 18:20 Vill sjá breytingar á verkferlum öryggisleitar Guðmundur Ingi þingmaður vill sjá breytingar á verkferlum við öryggis- og vopnaleit á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Hjörtur Setja bókamerki Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður segir ekkert kosta að sýna tillitssemi og sér fram á að beita sér fyrir breytingum á framkvæmd öryggis- og vopnaleitar á Keflavíkurflugvelli. Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag gagnrýndi Guðmundur fyrirkomulagið á Keflavíkurflugvelli á Alþingi í dag eftir að hann lenti í erfiðleikum í öryggisleit. Frétt af mbl.is Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Guðmundur segir viðbrögðin ekki hafa látið á sér standa. „Ég er búinn að fá fullt af skilaboðum og það er verið að hvetja mig til að taka á þessu. Fólk er í svo mismunandi ástandi og sumir hafa lent frekar illa í því í öryggisleitinni. Fólkið hefur kvartað en það breytist ekkert,“ segir Guðmundur í samtali við blaðamann. Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður. mbl.is/Eyþór Skoðar að beita sér fyrir breytingum Aðspurður segist hann ætla að skoða það að beita sér fyrir breytingum. „Þarna þarf að sýna meiri tillitssemi. Ef ég hefði verið einn á ferð hefði ég sennilega lent í meiri vandræðum.“ Guðmundur segir að gott væri að hafa sérraðir fyrir fólk sem á erfiðara með gang en aðrir og einnig aðgang að stól og skóhorni fyrir fólk sem þarf að fara úr skónum við öryggisleit. Í skriflegu svari Isavia við fyrirspurn mbl.is um verklag við öryggisleit segir upplýsingafulltrúi að allt miði að því að tryggja flugvernd og að farþegar sem geti einhverra hluta vegna ekki farið í gegnum málmleitarhlið fari beint í handleit. Í svarinu segir að búnaðurinn sem notaður er á Keflavíkurflugvelli sé bundinn þeim skilyrðum að vökvi, tölvur, yfirhafnir og fleira sé sett í bakka fyrir gegnumlýsingu en að útboð vegna kaupa á nýjum gegnumlýsingarbúnaði fyrir öryggisleitina sé í undirbúningi. Isavia staðfestir að hægt sé að óska eftir séraðstoð fyrir fólk með skerta ferðafærni en að láta þurfi vita í gegnum viðkomandi flugfélag 48 klukkustundum fyrir brottför. Þá segir Isavia að svæðið milli öryggisleitar og fríhafnarverslunar sé hugsað sem svæði fyrir farþega til að athafna sig eftir öryggisleit og að þar eigi að vera til staðar bekkir og skóhorn en tekur fram að vegna framkvæmda á svæðinu gætu bekkirnir hafa færst úr stað tímabundið. „Eins og Jesú á krossinum “ Deiling fyrri fréttar á Facebook síðu MBL vakti mikla athygli og fólk skiptist í tvær fylkingar. Á annan bóginn er fólk þakklátt fyrir mikið eftirlit og lætur slíka öryggisleit ekki á sig fá en á hinn bóginn finnst sumum verklagið til skammar og fólk upplifir sig eins og „Jesú á krossinum“, ef vitnað er beint í athugasemdir. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Guðmundur Ingi vill sjá breytingar Átján ára hetja Íslands Myndband: Eyjólfur hífður upp með þyrlu Gæslunnar Faldi sig á bak við runna eftir stefnumót Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Evran enginn happafengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landsliðin flugu með íslenskum vélum Málverkaþjófnaður um hábjartan dag „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Andlát: Þórir Lárusson Ekki frá höfundum komið Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nýjast á mbl.is » Guðmundur Ingi vill sjá breytingar Átján ára hetja Íslands Myndband: Eyjólfur hífður upp með þyrlu Gæslunnar Faldi sig á bak við runna eftir stefnumót Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Evran enginn happafengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki frá höfundum komið Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ „Verið að svíkja öll loforð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Andlát: Þórir Lárusson Ekki frá höfundum komið Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga

Share this article