Security News

Cybersecurity news aggregator

💰
INFO News Viðskiptablaðið

Keeps lýkur 50 milljóna kvennafjármögnun

  • What: Icelandic start-up Keeps raised 50 million ISK in funding.
  • Impact: Highlights growth in women-led tech startups in Iceland.
Read Full Article →

Íslenska sprotafyrirtækið Keeps hefur lokið 50 milljóna króna fjármögnunarlotu. Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Keeps, segir að þetta hafi verið sannkölluð „kvennafjármögnun“ en nýir fjárfestar séu flestir konur. Meðal þátttakenda í fjármögnunarlotunni voru Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi Sensa, Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarmaður hjá Högum og Nova, og Rannveig Grétarsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Eldingar. Auk þess tóku Guðlaug Erla Jóhannsdóttir, Anna Björk Bjarnadóttir og Selma Árnadóttir þátt. Nýsköpunarsjóðurinn Kría fjárfesti einnig í sprotafyrirtækinu í formi mótframlags annarra fjárfesta. Viðskiptablaðið fjallaði nýlega um Keeps sem var stofnað árið 2023. Hugmyndin á bak við fyrirtækið var að auðvelda sjálfvirka uppfærslu á myndum og efni hótela á bókunarsíðum til að auka sýnileika og efla bókunartíðni. Sjá einnig Minna á mikilvægi mynda „Markmiðið með fjármögnuninni er að stuðla að áframhaldandi sölu og þróun ásamt því að byrja að þróa afþreyingarhlutann í kerfinu sem margir bíða eftir,“ segir Guðrún Hildur. Hún bætir við að fyrirtækið sé nú að þróa nýtt samfélagsmiðlatól sem muni m.a. nýtast veitingastöðum og ferðaskrifstofum.

Share this article