Rússlandsher skaut niður 25 dróna nærri Sankti Pétursborg í nótt. Frá þessu greinir héraðsstjórinn Alexander Drozdenko á Telegram. Á miðvikudag gerði Úkraínuher drónaárásir á olíuinnviði í Pétursborg. Þann sama dag hófst alþjóðleg efnahagsráðstefna í borginni en henni lýkur á morgun. Ráðstefnan hefur verið kölluð „Davos Pútíns“. Sergei Sobyanin, borgarstjóri Moskvu, greinir frá því að Rússlandsher hafi skotið niður níu úkraínska dróna sem stefndu á rússnesku höfuðborgina. Aukinn kraftur hefur færst í drónaárásir Rússa og Úkraínumanna á síðustu dögum. Fyrr í vikunni birit Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti opið bréf þar sem hann bauð Vladimír Pútín Rússlandsforseta til friðarviðræðna. Pútín sér aftur á móti engan tilgang í að funda fyrr en friðarsamningur liggur fyrir. Hann ávarpaði blaðamenn í gær og sagði að stríðinu lyki ekki fyrr en Rússar hefðu náð markmiðum sínum.
This article describes an increase in kinetic drone warfare between Russia and Ukraine, specifically detailing recent attacks on infrastructure near Saint Petersburg and Moscow. It does not describe a software vulnerability, patch, or CVE, and therefore contains no technical details such as CVSS scores, affected versions, or remediation steps relevant to IT security professionals.