Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Rússar hefna varnarsamnings Úkraínu og ESB með árásum

  • What: Russian attacks on Kyiv and Kharkiv in Ukraine
  • Impact: Civilians and infrastructure affected, with casualties reported
Read Full Article →

Tveir voru drepnir og að minnsta kosti sex særðust í flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kyiv í Úkraínu í nótt. Borgarstjóri Kyiv, Vitali Klitschko, greindi frá mannfallinu á samfélagsmiðlum. Hann greindi einnig frá árás á vöruhús og sagði að brot úr flugskeyti hefði hafnað á nærliggjandi byggingum. Árásirnar í Kyiv áttu sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir heimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, en Úkraína og ESB undirrituðu í gær samning um nánari samvinnu í varnarmálum. Þau ætla meðal annars að vinna saman að þróun og eflingu drónaframleiðslu. Þá voru gerðar dónaárásir á Kharkiv í Norðaustur-Úkraínu í nótt. Ekki hefur greint frá mannfalli í þeim árásum. Rússneskar hersveitir gerðu einnig miklar árásir víða um Úkraínu í gær. 13 voru drepnir og 50 særðust í þeim árásum. Aukinn þungi hefur færst í átökin í Úkraínu undanfarið og mikið mannfall var í júní, eða það mesta í landinu í einum mánuði síðan í apríl 2022.

Share this article