Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Særðist alvarlega eftir árás hákarls

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 39 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Særð­ist al­var­lega eftir árás há­karls Grétar Þór Sigurðsson Þrír hafa látist í hákarlaárásum í Ástralíu það sem af er ári. EPA / SITTHIXAY DITTHAVONG Kafari særðist alvarlega eftir árás hákarls undan ströndum Vestur-Ástralíu í morgun. Aðeins tvær vikur eru síðan maður lést eftir árás hákarls í norðurhluta landsins. Þrír hafa látist þar í landi í hákarlaárásum það sem af er ári. Ástralskir vísindamenn telja að flökkumynstur hákarla sé að breytast, ekki síst vegna hækkandi sjávarhita. Það kunni að skýra aukna tíðni hákarlaárása. Fyrir 23 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Finnst fal­legt að geta lokað hringn­um Sara Björk Gunnarsdóttir segir það verða lítið mál að gíra sig upp í að spila leiki í næstefstu deild á Íslandi eftir langan og farsælan atvinnuferil erlendis. Hjarta hennar slái fyrir Hauka í Hafnarfirði. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Reykja­vík­ur­borg vistaði tólf börn í Bakka­koti eftir að of­beldi hafði verið til­kynnt Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum var Reykjavíkurborg eina sveitarfélagið sem hélt áfram að vista börn á fósturheimilinu Bakkakoti á árunum 2002 til 2005. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Vatíkanið Páfi heldur í viku­langa heim­sókn til Spánar Búist er við að milljón manns sæki messu páfa í miðborg Madrídar á morgun. Í heimsókn sinni ætlar Leó XIV að ræða við fórnarlömb kaþólsku kirkjunnar á Spáni Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar réðust á banda­rísk­ar her­stöðv­ar Íranski byltingarvörðurinn segir árás á bandaríska flotastöð í Barein hafa heppnast. Stjórnstöð Bandaríkjahers vísar því á bug og segir sex írönsk flugskeyti hafa verið skotin niður auk þess sem eitt missti marks. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar skutu niður 25 dróna nærri Sankti Pét­urs­borg Aukinn þungi hefur færst í drónahernað Úkraínumanna og Rússa að undanförnu. Níu úkraínskir drónar sem stefndu á Moskvu voru skotnir niður í nótt. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Maðka­flug­ur sem leggj­ast á húsdýr valda usla í Texas Nautgripabændur í Bandaríkjunum eru uggandi eftir að tegundin fannst í tveimur kálfum í Texas í vikunni. Flugan verpir eggjum sínum í sár dýra og lirfur hennar nærast svo á holdi dýranna. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Ír­anska liðið komið með vega­bréfs­árit­un til Banda­ríkj­anna Allir leikir íranska fótboltalandsliðsins í riðlakeppni HM verða leiknir í Bandaríkjunum. Liðið færði æfingabúðir sínar frá Bandaríkjunum til Mexíkó vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­rík­in ráðast á ír­ansk­ar rat­sjár­stöðv­ar Stjórnstöð Bandaríkjahers segir skipaumferð í Hormússundi hafa stafað bein ógn af fjórum írönskum drónum sem herinn skaut niður. Árásir hafi í kjölfarið verið gerðar á ratsjárstöðvar til að fyrirbyggja frekari árásir af hálfu Írana. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Eurovision Áhorf­end­ur Euro­vi­sion 35 millj­ón­um færri en í fyrra Áhorf á Eurovision í ár var mun minna en í fyrra. Keppnin náði þó áfram miklu sjónvarpsáhorfi í mörgum löndum, sérstaklega á Norðurlöndum. Ungt fólk horfði í miklum mæli á útsendinguna. Stafrænt áhorf og notkun samfélagsmiðla jókst verulega. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sér­sveit­in kölluð út á Ak­ur­eyri Grétar Þór Sigurðsson Liðsmenn sérsveitar ríkislögreglustjóra. RÚV Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði við lögregluaðgerð á Akureyri í kvöld. Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í samtali við fréttastofu. Hann vildi ekki veita frekari upplýsingar um eðli lögregluaðgerðarinnar né heldur hvers vegna sérsveitin var kölluð til aðstoðar. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, segir í samtali við fréttastofu að liðsmenn sérsveitar séu til taks á Akureyri og að þeir hafi verið kallaðir til aðstoðar í þetta sinn. Mbl.is hefur eftir sjónarvotti að nokkrir lögreglubílar og sérsveitarbílar hafi verið á vettvangi á Strandgötu þar sem ungur maður var handtekinn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð Magnús Páls­son út­nefnd­ur lista­mað­ur Fjarða­byggð­ar Magnús Pálsson myndlistarmaður var í dag útnefndur listamaður Fjarðabyggðar þegar viðurkenningin var veitt í fyrsta sinn. Athöfnin er hluti af listahátíð Fjarðabyggðar sem hófst á mánudag. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Rökkvi Hljóm­ur lauk bú­fræði­prófi með 9,41 í ein­kunn Brautskráning Landbúnaðarháskóla Íslands fór fram í dag, 5. júní, á Hvanneyri við hátíðlega athöfn. Rökkvi Hljómur Kristjánsson rakaði til sín verðlaunum fyrir frábæran árangur, en hann lauk búfræðiprófi með glæsilega einkunn, 9,41. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Hvert ban­as­lys er einu of mikið“ Öryggi sjómanna var í brennidepli á björgunaræfingu Slysavarnaskóla sjómanna í Reykjavíkurhöfn í dag. Einn sjómaður að meðaltali hefur farist á sjó ár hvert síðustu tuttugu árin. 5. júní 2026 kl. 21:24ÍÞRÓTTIR Handbolti Örn verður þjálf­ari Sel­foss Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Örn Þrastarson þjálfari Selfoss. Selfoss Selfoss gekk í dag frá ráðningu nýs þjálfara fyrir komandi leiktíð á Íslandsmóti karla í handbolta. Örn Þrastarson tekur við liðinu af Spánverjanum Carlos Martin. Örn er öllum hnútum kunnugur á Selfossi. Hann spilaði með félaginu um árabil en hefur svo verið þjálfari hjá hinum ýmsu flokkum félagsins síðustu 20 ár og verið íþróttastjóri handknattleiksdeildarinnar. Eiginkona Arnar, Perla Ruth Albertsdóttir leikur með kvennaliði Selfoss og systkini hans hafa gert það gott sömuleiðis. Haukur bróðir hans er nú hjá Rhein Neckar Löwen í Þýskalandi og Hrafnhildur Hanna og Hulda Þrastardætur eiga sömuleiðis að baki farsælan feril. 5. júní 2026 kl. 21:00INNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Bank­arn­ir nýta und­an­þágu­heim­ild Seðla­bank­ans lítið Bankar og lífeyrissjóðir nýta undanþáguheimild Seðlabankans vegna fasteignakaupa lítið, þrátt fyrir að hún hafi verið tvöfölduð í fyrra. Yfirhagfræðingur hjá HMS segir það merki um kaldari fasteignamarkað en Seðlabankinn hefði á kosið. 5. júní 2026 kl. 20:27INNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Styrkja fjar­skipta­ör­yggi vegna al­myrk­vans Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans í ágúst. 5. júní 2026 kl. 20:17ERLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ísland í sterkri samn­ings­stöðu gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu Ísland er í sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu fari svo að aðildarviðræður haldi áfram, segir utanríkisráðherra Austurríkis. Hún telur betra fyrir lönd að vera með sæti við borðið heldur en fyrir utan sambandið. 5. júní 2026 kl. 20:01INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Á þriðja tug flúr­ara í Gamla bíó um helg­ina Tuttugu ár eru frá fyrstu húðflúrhátíðinni. Á þriðja tug flúrara verða að störfum í Gamla bíó um helgina. Sprenging hefur orðið i bransanum á undanförnum árum. 5. júní 2026 kl. 19:38INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Fjár­mála­ráð­herra segist ekki hafa rang­túlk­að nið­ur­stöð­ur gjald­miðla­skýrslu Fjármálaráðherra segir gagnrýni á framsetningu fjármálaráðuneytisins á niðurstöður gjaldmiðlaskýrslu hvorki sanngjarna né réttmæta. Stjórnarandstaðan hélt áfram að gagnrýna ráðherrann á þingi í dag. 5. júní 2026 kl. 18:50ERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Þróa nýja tegund bólu­efn­is með hjálp gervi­greind­ar Gervigreind var notuð til að búa til svokallaðan ofur-mótefnavaka, sem er ætlað að geta nýst til varnar öllum framtíðarafbrigðum af kórónuveiru. 5. júní 2026 kl. 18:29ERLENDAR FRÉTTIR Níger 49 manns fórust úr þorsta í Sahara eftir að bíll bilaði Hópur um fimmtíu manna fórst úr þorsta í Sahara-eyðimörkinni á dögunum. Bíll þeirra hafði bilað og vatnið klárast. 5. júní 2026 kl. 18:28INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Nákvæm skýrsla um upp­gröft á beinum Jón­as­ar í skjala­safni for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins Skjöl um uppgröft á beinum Jónasar Hallgrímssonar er að finna í skjalasafni forsætisráðuneytsins. Þjóðminjavörður sem annaðist uppgröftin mat beinin vera Jónasar út frá staðsetningu þeirra í grafarreitnum. Fjórir aðrir voru jarðsettir í sama reit. 5. júní 2026 kl. 18:28INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Guð­laug skipuð skóla­meist­ari Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja Guðlaug M. Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja til næstu fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Hún tekur við af Kristjáni Ásmundssyni sem sagði af sér í apríl. 5. júní 2026 kl. 17:27INNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Hverj­ir eiga Ísland? Yfir 600 lögbýli eru í eigu dánarbúa. Af tæplega 7000 lögbýlum eru um 13% í eyði. Tveir erlendir auðkýfingar eiga um 40 jarðir í gegnum félög skráð hér á landi. 5. júní 2026 kl. 16:42INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Upp­sagn­ir Kviku sam­hliða við­bót­ar­arð­greiðslu „takt­laus­ar en hrein­skiln­ar“ Formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja segir uppsagnir ellefu starfsmanna Kviku banka í gær óvanalegar. Stjórn Kviku samþykkti sama dag að greiða út 10 milljarða í viðbótararðgreiðslur. 5. júní 2026 kl. 16:25ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Pútín úti­lok­ar fund með Zel­en­sky í bráð Dagný Hulda Erlendsdóttir Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir engan tilgang með því að funda með Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta fyrr en friðarsamningur liggur fyrir. Zelensky bauð honum til viðræðna í opnu bréfi í gær. Þar lagði hann til að þeir myndu hittast bráðlega í hlutlausu landi og stakk upp á Sviss og Tyrklandi. Pútín ávarpaði blaðamenn á alþjóðlegri efnahagsráðstefnu í Sankti Pétursborg í dag og sagði að stríðinu lyki ekki fyrr en Rússar hefðu náð markmiðum sínum. Stjórnvöld í Rússlandi hafa sett fram kröfur um yfirráð yfir austurhluta Úkraínu, um breytingar á valdhöfum í landinu og um takmarkanir á hernaðargetu landsins. Vladimír Pútín, forseti Rússlands. AP / Alexander Kazakov 5. júní 2026 kl. 16:20INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Skuld­setn­ing í bygg­ing­ar­iðn­aði mikið áhyggju­efni Sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka ið

Share this article