Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lífstíðarfangelsi fyrir árás á jólamarkað

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir árás á jóla­mark­að Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Taleb Jawad al-Abdulmohsen hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir árás á jólamarkað í Magdeburg í Þýskalandi í desember 2024. Sex féllu og á fjórða hundrað slösuðust. Maðurinn er 51 árs gamall geðlæknir frá Sádi-Arabíu. Í dómnum eru glæpir al-Abdulmohsen skilgreindir sem sérstaklega alvarlegir, sem útilokar möguleikann á snemmbúinni reynslulausn. EPA / FILIP SINGER / POOL Fyrir 59 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Er ein­hver séns að mik­il­væg­asta mann­eskj­an í lífi mínu geti hitt fyr­ir­mynd­ina sína?“ Kvikmyndagerðarmaðurinn Ragnar Hansson vatt sér upp að leikkonunni Sigourney Weaver þegar hún var á gangi í miðbæ Reykjavíkur. Hann sýndi henni mynd á símanum sínum og bar upp mikilvæga bón, sem leikkonan varð við. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Trúarbrögð Kveðj­urn­ar svo­lít­ið eins og skratt­inn úr sauð­ar­leggn­um Kveðjur við jarðarfarir eru barn síns tíma að mati presta á Akureyri, sem líkja þeim við tilkynningu á þjónustuborði í Hagkaup inn í fallega athöfn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Kaldi og rign­ing um helg­ina Veðurstofan spáir kalda og rigningu um helgina með hita að 15 stigum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Breska konungsfjölskyldan Breta­kon­ung­ur ætlar ekki að búa í Buck­ing­ham-höll Á næsta ári lýkur endurbótum á Buckingham-höll sem hafa tekið áratug og kostað yfir 60 milljarða króna. Höllin hefur verið aðalheimili breskra þjóðhöfðingja frá valdatöku Viktoríu drottningar á fyrri hluta 19. aldar. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Tyrk­land – Banda­rík­in Tyrkir náðu að merja sigur með marki á lokasekúndum leiksins. Þeir eru þó á heimleið en liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Par­agvæ – Ástr­al­ía Ástralir eru öruggir áfram upp úr D-riðli og Paragvæjar fylgja þeim líklega áfram í útsláttarkeppnina. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Par­agvæ lík­lega á leið upp úr D-riðli með Ás­trölum og Banda­ríkja­mönn­um Bandaríkin og Ástralía eru komin upp úr D-riðli á HM í fótbolta og talsverðar líkur eru á að Paragvæ fari áfram með þeim. Það var ljóst fyrir leiki næturinnar að Tyrkir væru á heimleið. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Írak Írakar hóta að segja sig úr OPEC Írak er ein af stofnþjóðum OPEC og næststærsti olíuframleiðandi samtakanna. Ríkið glímir við efnahagskreppu eftir að olíuflutningar um Hormússund stöðvuðust og stjórnvöld vilja að OPEC rýmki útflutningskvóta olíu umtalsvert. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Japan – Sví­þjóð Japanar og Svíar eru komnir áfram í útsláttarkeppnina á HM eftir 1-1 jafntefli. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Túnis – Hol­land Hollendingar enduðu á toppi F-riðils eftir auðveldan 3-1 sigur á Túnis í nótt. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Jafn­tefli dugði Svíum og Jap­ön­um til að komast áfram Hollendingar enduðu á toppi F-riðils eftir auðveldan 3-1 sigur á Túnis í nótt. Lið Japans og Svíþjóðar eru bæði komin áfram í útsláttarkeppnina eftir 1-1 jafntefli. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Skutu niður á þriðja tug dróna sem stefndu á Moskvu Grétar Þór Sigurðsson Svartur reykur stígur til himins eftir drónaárás Úkraínumanna á olíuhreinsistöð í útjaðri Moskvu í síðustu viku. EPA / Stringer Í það minnsta 28 drónum sem stefnt var að Moskvu voru skotnir niður á um klukkutíma tímabili í kvöld. Frá þessu greinir Sergei Sobyanin, borgarstjóri Moskvu á Telegram. Hann segir yfivröld vinna að því að finna út hvar brak drónanna féll til jarðar. Drónaárásir Úkraínumanna gegn Rússum hafa færst í aukana á síðustu mánuðum. Þær hafa einkum beinst að orku- og olíuinnviðum í Rússlandi. Tilgangur þeirra hefur verið að skerða tekjur stjórnvalda í Kreml og gera þeim þannig erfiðara fyrir að fjármagna stríðsrekstur sinn. Mikill eldur kviknaði í olíuhreinsistöð suðaustur af Moskvu í síðustu viku eftir árás Úkraínuhers. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Slökkvi­lið­ið kallað til að gleð­skap í Mos­fells­bæ Grétar Þór Sigurðsson Einn dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sinnti útkallinu. RÚV / Ragnar Visage Einn dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var kallaður út rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra í aðgerðarstjórn var um gleðskap í iðnaðarhverfi í Mosfellsbæ að ræða. Þar hafði hópur fólks kveikt eld sem var stærri en leyfilegt er að kveikja í þéttbýli. Hann segir slökkviliðið hafa verið fljótt að slökkva í eldinum og að ekkert tjón hafi orðið. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Fimmt­án viku­birgð­ir af kókó­mjólk með upp á há­lendi Björgunarsveitarfólk frá Súlum á Akureyri stendur vaktina í Landmannalaugum næstu vikuna. Tvö útköll bárust af hálendinu í dag, á fyrsta degi árlegrar hálendisvaktar Landsbjargar. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Breska konungsfjölskyldan Hefur greitt and­virði fimm millj­arða í skatta síðan hann varð kon­ung­ur Karl Bretakonungur hefur greitt andvirði fimm milljarða íslenskra króna í skatt síðan hann tók við embætti konungs. Hann er fyrsti konungborni þjóðhöfðinginn í Bretlandi sem birtir skattaskýrslu sína. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Ekv­ad­or­ar tryllt­ust af fögn­uði Ekvador vann 2-1 endurkomusigur gegn Þjóðverjum. Þeir höfðu eiginlega ekki sýnt neitt á mótinu hingað til en vöknuðu til lífs í seinni hálfleik. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Náðu því sem gull­ald­ar­kyn­slóð Fíl­anna tókst aldrei Lið Fílabeinsstrandarinnar fór áfram upp í riðlakeppni á HM í fyrsta sinn. Þetta er í fjórða sinn sem liðið tekur þátt en gullaldarlið Fílanna náði aldrei upp úr riðli. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Curaç­ao - Fíla­beins­strönd­in Fílabeinsströndin vann 0-2 sigur gegn Curaçao þar sem Nicolas Pepe skoraði bæði mörkin. Liðið fór áfram úr riðlakeppni í fyrsta sinn í fjórðu tilraun. 25. júní 2026 kl. 22:21ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Ekv­ad­or - Þýska­land Ekvador vann 2-1 endurkomusigur gegn Þjóðverjum. Þeir höfðu eiginlega ekki sýnt neitt á mótinu hingað til en vöknuðu til lífs í seinni hálfleik. 25. júní 2026 kl. 20:21INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélög Brýnt að setja lög um lóða­leigu – Laga­skort­ur býður upp á mis­mun­un Lagaprófessor segir brýnt að sett verði löggjöf um lóðaleigurétt. Slík löggjöf sé fyrir hendi í löndunum í kring um okkur. Lágmarks leikreglur þurfi að setja sem fyrst. 25. júní 2026 kl. 20:01INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ný reglu­gerð um mál­efni barna með fjöl­þætt­an vanda gæti kostað sveit­ar­fé­lög­in millj­arða Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga segir íslenska ríkið brjóta samkomulag við sveitarfélögin með nýrri reglugerð um ábyrgð í málefnum barna með fjölþættan vanda. Um tveir milljarðar gætu bæst við útgjöld sveitarfélaganna á næsta ári. 25. júní 2026 kl. 19:51ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Frest­un á einum stað hefur ekki áhrif á öðrum Sá möguleiki er fyrir hendi að leikir frestist vegna slæmra veðurskilyrða á HM í fótbolta. Nú þegar úrslitaleikirnir í riðlum fara fram hefjast þeir á sama tíma. Það er þó ljóst að ef leik er frestað vegna veðurs verður hinum leiknum ekki frestað. 25. júní 2026 kl. 19:50INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Boðar breyt­ing­ar á við­veru, ráðn­ing­um og ferða­lög­um Borgarstjóri boðar frekari hagræðingu í tölvupósti til starfsfólks Ráðhússins. Þá stendur til að gera áherslubreytingar sem snúa að viðveru, ráðningum og ferðalögum. 25. júní 2026 kl. 18:47INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Gjald­frjáls Strætó Reykja­vík­ur­barna kominn og farinn Að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir öll reykvísk grunnskólabörn var ófjármögnuð tillaga, segir í bókun borgarstjóra. Tillagan var samþykkt skömmu fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar en hefur nú verið afturkölluð. 25. júní 2026 kl. 18:16ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Fíla­beins­strönd­in áfram í fyrsta skipti - Ekv­ad­or í fyrsta sinn frá 2006 Ekvador vann 2-1 endurkomusigur gegn Þýskalandi og fer áfram úr riðlakeppni HM í annað sinn. Það fyrra var árið 2006. Fílabeinsströndin vann öruggan 0-2 sigur gegn Curaçao þar sem Nicolas Pepe skoraði bæði mörkin. Þetta er í fyrsta sinn í fjórðu tilraun sem Fílarnir komast áfram úr riðlakeppni á HM. Við fylgdumst með fyrstu leikjum dagsins í lifandi fréttavakt og birtum helstu atvik. Síðar í kvöld og í nótt ráðast úrslit í F- og D-riðlum. SAMANTEKT 25. júní 2026 kl. 18:08ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Af hverju í ósköp­un­um er Bosnía komin áfram? Bosníumenn eru komnir áfram í 32-liða úrslit með einn bestan árangur liða í þriðja sæti. En enn á eftir að leika í nær öllum riðlum. Hvernig stendur á þessu? 25. júní 2026 kl. 18:04INNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Hefja brott­vís­an­ir fanga fyrir mán­aða­mót Á næstu vikum verður níu erlendum föngum vísað úr landi í skjóli nýrrar, tímabundinnar, heimildar í lögum. Forstjóri Fangelsismálastofnunar segir áform um fleiri brottvísanir. 25. júní 2026 kl. 17:45INNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Til skoð­un­ar að bæta við neyð­ar­núm­eri Til skoðunar er að bæta við símanúmeri í Neyðarlínuna á meðan á yfirfærslu úr 2G og 3G stendur. Það gætu verið lagalegar hindrarnir, segir sviðsstjóri hjá Fjarskiptastofu. 25. júní 2026 kl. 17:27INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Vilja byggja upp nýtt og minna sam­skiptateymi í borg­inni Borgarstjóri segir það hafa verið erfiða ákvörðun að segja upp stórum hluta skrifstofu borgarstjóra. Ekki standi til að útvista öllum verkefnum. 25. júní 2026 kl. 17:26INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lög­regla naut að­stoð­ar sér­sveit­ar undir Esj­unni Guðmundur Atli Hlynsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra í aðgerð undir Esjunni fyrir skömmu. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfestir þetta. Óskað var eftir aðstoð sérsveitar. Á mynd frá vettvangi má sjá

Share this article