Hátíðarhöld verða vítt og breitt um landoð í tilefni sjómannadagsins, sem er á morgun, sunnudaginn 7. júní. Gríðarlega fjölbreytt dagskrá verður víða. Hér er stiklað á mjög stóru í dagskránni í nokkrum bæjarfélögum. Hægt að skoða varðskipið Freyju og ísíisktogarann Viðey Landhelgisgæslan verður í Reykjavíkurhöfn með sýningu á björgun úr sjó á sjómannadaginn. Þá geta gestir skoðað varðskipið Freyju. Hinn ómissandi koddaslagur á planka verður í Vesturbugt. Boðið er upp á sjávarréttasúpu og gestir geta skoðað ísfisktogarann Viðey. Mjög fjölbreytt dagskrá er fyrir yngri kynslóðina á Grandagarði. Sjómannadagsmessa er í Dómkirkjunni. Biskupinn með hátíðarmessu í Grindavík Í Grindavík er sjómannadeginum fagnað frá því síðdegis á föstudag. Meðal viðburða má nefna hátíðarmessu biskupsins yfir Íslandi, séra Guðrúnar Karls Helgudóttur, í Grindavíkurkirkju þar sem sjómenn verða heiðraðir. Sundlaugarpartí, mótorhjólakeppni og stórdansleikur eru einnig á dagskránni. Sömuleiðis verður boðið upp á hæsta klifurturn landsins og frítt verður í hoppukastala, hringekju og teygjuhopp við Kvikuna allan sjómannadaginn. Og er þá fátt eitt talið. Stórfögnður í miklum sjávarplássum Vestmanneyingar slá upp stórdansleik á laugardagskvöldinu með kvöldverði á undan og fjölbreytt dagskrá er á sjómannadeginum sjálfum að venju. Í Neskaupstað hefst fögnuðurinn strax fimmtudaginn 4. júní með pítsuhlaðborði. Á föstudagskvöldið eru tónleikar í Egilsbúð og hópsigling norðfirska flotans fer fram á laugardagsmorguninn. Kappróður, dansleikur, hoppukastali, hátíðarmessa og koddaslagur eru einnig meðal atriða. Húni II fer í minningarsiglingu sjómanna Bæjarhátíðin Grásleppan er á Bakkafirði með sjómannadagsleikjum og gítar-og harmonikkupartíi. Sjómannadagsmessa er í Akureyrarkirkju þar sem heiðra á aldraða sjómenn. Húni II fer í minningarsiglingu sjómanna og á sjómannadaginn er siglt með bæjarbúa í halarófu trillusjómanna. Minnismerki um síðuogarasjómenn verður afhjúpað. Á Skagaströnd er efnt til koddaslags, kappróðurs og kassabílaralls. Stórdansleikur á Patró Byrjað er á Patreksfirði á fimmtudeginum með skokki og grilli. Á föstudagskvöldið eru tónleikar með Todmobile. Stórdansleikur er á laugardagskvöldinu og hátíðarmessa á sunnudeginum. Í Snæfellsbæ er skemmtisigling frá Ólafsvík á föstudeginum. Kappróður, reiptog, flekahlaup, kajaksiglingar og sjómannaball í félagsheimilinu Klifi er á dagskrá á laugardeginum og sjómannamessa á sunnudeginum.