Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sjómenn eru stoltir af deginum sínum

Read Full Article →

Glæsileg dagskrá verður að vanda á Grandagarði á sjómannadaginn. Að baki skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar standa Sjómannadagsráð, Brim og Faxaflóahafnir eins og verið hefur undan farin ár. Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, segir hátíðina hafa verið vel sótta, sérstaklega ef veðrið sé blítt, eins og eigi við um allar útihátíðir. „Ef það er ekki hvasst er hægt að horfa fram á mjög góðan dag,“ segir hann. Skemmtileg viðbót í ár Dagskrána segir Aríel vera með hefðbundnu sniði og að fastir séu liðir á sínum stað. „Svo er mjög skemmtileg viðbót í ár sem er Fjölskylduhlaup TM sem verður haldið á sjómannadaginn úti á Granda og byrjar við Brim. Það er mikið fagnaðarefni að íþróttahreyfingin sýni því áhuga að taka þátt í sjómannadeginum með okkur,“ segir hann. Dagur endurfunda Aríel Pétursson. Mynd/Ernir Sjómenn sjálfa segir Aríel mjög áhugasama um sjómannadaginn. „Ég tala sjálfur af eigin reynslu um að þetta er sá dagur þegar maður vill endilega taka með sé börnin út á Granda að skoða skipin og skapa jákvæðar minningar hjá börnunum og hjá fólki í kringum sjósókn og sjómennsku,“ segir hann. Dagurinn hafi djúpa merkingu fyrir sjómenn og þeim þyki vænt um hann. „Þetta er lögboðinn frídagur þar sem allir sjómenn hittast. Sérstaklega fyrir þá sem eru á sitt hvoru skipinu og sitt hvoru rólinu er þetta dagur endurfunda,“ segir Aríel. Því fylgi mikil ánægja að vera sjómaður og sjá öll skipin. Eins og risastórt gallerí „Þetta er eins og risastórt gallerí að sjá öll þessi skip í höfn á sama tíma og sjómenn finna fyrir stolti að samfélagið um allt land er að halda upp á dag sjómanna,“ segir Aríel. Sjómannadagsráð var sett á laggirnar árið 1937 og verður því níutíu ára á næsta ári. Aðspurður segir Aríel að af því tilefni verði settur aukinn kraftur í hátíðarhaldið í kringum sjómannadaginn. „Mögulega verða fengin herskip til að taka þátt í deginum,“ nefnir hann sem dæmi um hugsanlega viðbót á afmælisárinu. Dagleg viðfangsefni Sjómannadagsráðs eru stór og mörg. Athvarf á ævikvöldi „Strax ári eftir stofnun ráðsins var tekin sú stefna að leysa annað vandamál en frídag sjómanna og það var hvað hægt væri að gera fyrir sjómenn þegar þeir kæmu í land og væru slitnir og lúnir. Það var tekin stefna í átt að því að opna fyrsta Hrafnistuheimilið. Ráðið hefur allar götur síðan verið eigandi og rekstraraðili Hrafnistuheimilanna og nú í dag leigufélags sem heitir DAS-íbúðir,“ segir Aríel. Gengið hafi á ýmsu Þessi verkefni séu unnin með stuðningi happdrættis DAS. „Það er búið að ganga á ýmsu hjá okkur og verið mikil umsvif á undanförnum árum. Við erum búin að fjölga íbúðum. Það voru stækkuð hjá okkur tvö heimili og við stefnum að því að byggja fleiri íbúðir og stækka hjúkrunarheimili, bæði í Hafnarfirði og í Reykjavík,“ segir Aríel. Alir standa jöfnum fæti Aríel segir að fyrir meira en tveimur áratugum hafi öll hjúkrunarheimili landsins farið undir lög um málefni aldraðra. „Það þýðir að það er forgangsraðað inn á heimilin eftir færni- og heilsumati. Þannig að allir standa jöfnum fæti þar,“ svarar hann spurður hvort sjómenn njóti forgangs inn á heimili og í íbúðir Sjómannadagsráðs. Stoltir af uppbyggingunni „Það sem er magnað í þessu er að það er þrjú stéttarfélög sjómanna; VM, Félag skipstjórnarmanna og Sjómannafélag Íslands, sem standa að baki þessu og eru eigendur þessa merka samfélagsverkefnis Sjómannadagsráðs og það hefur alla tíð verið svo. Þannig að það er stolt sjómannanna,“ segir Aríel. „Það er bara að spýta í lófana“ Engan bilbug sé að finna á þessum félögum þegar horft sé til stuðnings við þetta verkefni til framtíðar. „Viðhorfið er bara að gefa í ef eitthvað er. Ákallið er mikið í samfélaginu og það er bara að spýta í lófana,“ segir Aríel Pétursson. Sagt var frá ýmsum dagskrárliðum á sjómannadagshátíðum á nokkrum stöðum á landinu á vef Fiskifrétta í gær.

Share this article