Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Undirliggjandi eftirspurn áhyggjuefni

Read Full Article →

Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur í greiningu Íslandsbanka, kveðst hafa mestar áhyggjur af því hvað gerist á íbúðamarkaði þegar vextir taki að lækka, enda ljóst að undirliggjandi eftirspurn á markaðnum sé til staðar og muni aukast áfram í þessu umhverfi. „Eftirspurninni er markvisst haldið niðri með háum stýrivöxtum og ströngum lánþegaskilyrðum. Ég hef helst áhyggjur af því að ekki sé verið að byggja nóg af íbúðarhúsnæði í þessu hávaxtaumhverfi. Þegar vextir lækka gæti markaðurinn hrokkið mjög hratt í gang og ef framboð annar ekki eftirspurn leiðir það vitaskuld til mikillar hækkunar íbúðaverðs,“ segir hún og bendir á að það yrði alls ekki í fyrsta sinn sem landsmenn stæðu frammi fyrir slíkri stöðu á íbúðamarkaði. Bergþóra leggur þó áherslu á að eins og staðan sé í dag sé verið að byggja þó nokkuð af nýju íbúðarhúsnæði og vonandi sé það nógu mikið til að anna þessari undirliggjandi eftirspurn sem muni óhjákvæmilega leita inn á markaðinn þegar efnahagsástandið batni. „Það er alltaf ákveðinn fjöldi fólks sem bíður eftir að komast inn á markaðinn og á meðan eftirspurninni er haldið niðri fjölgar í þeim hópi. Það má heldur ekki gleyma því að þegar efnahagsástandið batnar eykst þörfin á erlendu vinnuafli og það þarf að sjálfsögðu þak yfir höfuðið. Íslendingar þekkja vel þessi áhrif og því höfum við í greiningu Íslandsbanka verið að benda á að framboðið þurfi að vera nægilega mikið til að anna þessari uppsöfnuðu eftirspurn.“ Þá bendir hún á að peningastefnunefnd fylgist grannt með gangi mála á íbúðamarkaði og að hverfandi líkur séu á að nefndin muni taka það stór skref við lækkun vaxta að það leiði til svipaðrar stöðu og í Covid-faraldrinum, þegar íbúðaverð rauk upp úr öllu valdi. „Ekki nema það sé til að koma í veg fyrir önnur enn stærri áföll. Að því gefnu að við forðumst meiriháttar áföll má reikna með að nefndin muni, þegar að því kemur, lækka vexti í smáum og varfærnislegum skrefum.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article