Innlent | Sunnudagsblað | 6.6.2026 | 13:00 Rómantík á póstkortum Freyja Kristinsdóttir vann tvær Eddur, aðra fyrir uppgötvun ársins og hina fyrir stuttheimildarmynd ársins. mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki Tvær Eddur standa hlið við hlið í stofuglugganum heima hjá kvikmyndagerðarkonunni Freyju Kristinsdóttur þar sem hún býr í gömlu steinhúsi í miðbænum ásamt eiginmanni, dætrunum Fríðu Maríu og Sóleyju Stellu og þremur fallegum köttum, Rjóma, Rúsínu og Sónötu. Freyja hefur alltaf verið mikill dýravinur og vann lengi sem dýralæknir og síðar hundaþjálfari, en eitthvað vantaði þó í líf hennar. Hún tók þá stökkið út í kvikmyndagerð og sér ekki eftir því. Heimildarstuttmynd hennar Póstkort vann nýlega styttuna eftirsóttu en myndin fjallar um ást foreldra hennar sem var djúp og hlý. Það kom henni í opna skjöldu að vinna Edduverðlaun sem uppgötvun ársins. Freyja er hér með eiginmanninum Ásberg, dætrunum tveimur og kisunum. „Þetta var pínu vandræðalegt því ég var á salerninu. Verðlaunaafhendingin er löng og ég vissi að langt væri í að verðlaun fyrir heimildarstuttmynd yrðu veitt og skaust því frá. Þar sem ég sat á klósettinu fannst mér ég heyra nafn mitt kallað upp en fannst það skrítið. En svo heyrði ég fólk kalla á mig að koma, gyrti upp um mig og hljóp fram,“ segir Freyja og hlær dátt. Freyja dreif sig upp á svið, frekar hissa á þessu öllu saman. „Ég vissi ekki einu sinni fyrir hvað ég var að fá verðlaun!“ Ástarsaga foreldranna Við snúum okkur að máli málanna, nýju myndinni hennar Freyju, Póstkortum. Hún ákvað að takast á við mjög persónulegt viðfangsefni; ástarsögu foreldra sinna, Kristins Jónssonar og Sigurlaugar Bjarnadóttur. Myndin snertir einnig á alzheimer og nýrri ást föður eftir lát móðurinnar. „Mamma greindist með alzheimer um sextugt og lést rúmlega sjötug, árið 2024. Við pabbi fórum þá yfir dótið hennar og ég spurði hann hvort hún hefði kannski skrifað dagbók en svo var ekki. Þau voru mjög samrýnd hjón og voru alltaf saman og því voru ekki til bréf á milli þeirra. En pabbi sagðist reyndar hafa skrifað póstkort þegar hann gekk Jakobsveginn í fyrsta sinn, en þá var mamma nýgreind með alzheimer. Ég spurði hvort ég mætti sjá þau en hann vildi það ekki til að byrja með en gaf svo eftir. Hann leyfði mér reyndar ekki að sjá öll póstkortin,“ segir Freyja og brosir. Freyja notaði póstkort pabba síns sem efnivið í myndina. „En ég fékk drjúgan hluta af þeim og þau eru svo falleg og rómantísk. Hann skrifaði eitt póstkort á dag í 46 daga, eitt fyrir hvert ár sem þau voru saman. Þetta var ótrúlega falleg hugmynd og ég spurði hvort ég mætti gera úr þessu heimildarmynd. Hann var fyrst tregur til en gaf svo leyfi,“ segir hún. „Pabbi er intróvert týpa og því vissi ég ekki af þessari rómantísku hlið fyrr en ég las póstkortin,“ segir Freyja. Eftir lát Sigurlaugar fann Kristinn ástina á ný, á mjög svo óhefðbundnum stað. Berta Sveinbjarnardóttir heitir nýja ástin í lífi hans. „Hann fann ástina á hjúkrunarheimili mömmu, en þar var maður á svipuðum aldri og mamma með alzheimer. Konan hans kom daglega, alveg eins og pabbi, og þau hittust alltaf fjögur saman í kaffi, hádegismat og gönguferðum. Pabbi og Berta voru að ganga í gegnum það sama og tengdust þar,“ segir Freyja en Sigurlaug og eiginmaður Bertu létust með skömmu millibili. „Þau voru þá orðin ekkja og ekkill og samband þeirra þróaðist á meðan ég var að gera myndina um ástarsögu foreldra minna. Svo bættist þessi ástarsaga við, sem gerir myndina enn áhugaverðari. Lífið var ekki búið hjá pabba. Mér finnst dásamlegt að hann eigi lífsförunaut.“ Að segja fallegar sögur Myndin Póstkort er afar falleg og snertir marga. Blaðamaður fékk forskot á sæluna og getur vottað að myndin snertir strengi og á erindi við alla. „Margir eiga ástvini með alzheimer en hún snertir líka aðra sem missa ástvini. Hún sýnir að lífið getur haldið áfram, en það eru margir vinklar í sögunni. Mér finnst gaman að geta sagt fallegar sögur úr raunveruleikanum sem mega alveg heyrast nú þegar það dynja stöðugt á okkur neikvæðar fréttir. Maður þarf stundum eitthvað fallegt inn í líf sitt.“ Freyja er búin að finna sína hillu í kvikmyndagerð. mbl.is/Ásd Freyja er bara rétt að byrja og verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni. Nú er Póstkort farin á flakk og byrjar á kvikmyndahátíð í Noregi í næstu viku og fer svo til Gimli í júli. Íslendingar fá vonandi að njóta hennar fljótlega. „Ég vona að almenningur fái að sjá hana á næstunni. Myndin er enn á ferðalagi um kvikmyndahátíðir erlendis, en ég stefni að sýningu á RÚV.“ Ítarlegt viðtal er við Freyju í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tveir á bráðamóttöku með þyrlu eftir bílveltu á Suðurlandi Pilots reviewing Icelandair’s latest proposal Breytingar á þýska landsliðshópnum Rómantík á póstkortum „Við erum með biðlista í gróðurhúsið innandyra á hverju ári“ Umræðan Agi og agaleysi Þjóðaratkvæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Ástæða til að hafa áhyggjur Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Vindorka eykur flutningskostnað Ásta verður áfram sveitarstjóri Kaflaskil hjá bardagakind Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Tveir á bráðamóttöku með þyrlu eftir bílveltu á Suðurlandi Pilots reviewing Icelandair’s latest proposal Breytingar á þýska landsliðshópnum Rómantík á póstkortum „Við erum með biðlista í gróðurhúsið innandyra á hverju ári“ Umræðan Agi og agaleysi Þjóðaratkvæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rómantík á póstkortum Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Churchill of sundrandi og elitískur fyrir seðlana Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Vindorka eykur flutningskostnað Ásta verður áfram sveitarstjóri Kaflaskil hjá bardagakind Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna