Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Veiddi kríu á hitch

Read Full Article →

Edda Rut Björnsdóttir er forfallin veiðiáhugakona. Hún byrjaði veiðiskap sinn á bryggjunni í Garðinum en laxveiðin hófst í Sæmundará í Skagafirði. Sú á er enn í uppáhaldi, sem og Kjarrá. Edda Rut mun taka við forstjórastöðunni hjá Öryggismiðstöðinni seinna í sumar. Hún hefur starfað hjá Eimskip um árabil, nú síðast sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs. Þar á undan starfaði hún í tólf ár hjá Íslandsbanka, m.a. sem forstöðumaður sölu- og viðskiptastýringar á fyrirtækja- og fjárfestasviði bankans. Hjá Öryggis­miðstöðinni tekur hún við af Ragnari Þór Jónssyni, sem óskaði eftir því að láta af störfum. Edda hefur stundað stangaveiði frá unga aldri. „Ég byrjaði að veiða mjög ung á bryggjunni í Garðinum,“ ­segir Edda. „Þá fékk ég veiðistöng og björgunarvesti og veiddi mest marhnúta og krossfiska. Þegar ég varð eldri fóru amma og afi að bjóða fjölskyldunni í ­Sæmundará í Skagafirði og þar kviknaði bakterían fyrir alvöru. Maríulaxinn kom þar árið 2006 en það var mokveiði í ánni það árið.“ Öðruvísi verkefni Edda segist hafa verið alin upp í maðkaveiði en fluguveiðin sé allsráðandi í dag. „Ég var alin upp við að veiða á maðk og fannst það alltaf mjög skemmtilegt. Ég held þó meira upp á fluguveiðina í dag, sem er vissulega aðeins þrifalegra,“ segir hún og bætir því að með æfingunni hafi hún náð ­góðum tökum á því að kasta flugu. Það sé ekki síst góðum leiðsögumönnum að þakka." Edda Rut Björnsdóttir með fallegan hæng í Kjarrá. © Aðsend mynd (AÐSEND) „Mér fannst ég „ná“ kastinu fyrst almennilega þegar ég var að veiða í Víðidalsánni árið 2015 þar sem Jói, Jóhann Hafnfjörð Rafnsson, sem þá var staðarhaldari, var að gæda mig og var afar þolinmóður að kenna mér. Takturinn í kastinu var orðinn miklu betri en það virkaði þó ekki betur en svo í þeirri ferð að ég veiddi engan fisk en veiddi kríu á hitch. Ég var því allt í einu komin með lifandi flugdreka á stöngina og góð ráð dýr. Við Jói fengum því aðeins öðruvísi verkefni þann daginn, en honum tókst sem betur fer að bjarga þessu og krían lifði.“ Elskar að ­klöngrast um í náttúrunni Spurð hvort hún stundi bæði lax- og silungsveiði og hvort einhverjar sérstakar flugur séu í uppáhaldi svarar Edda: „Ég er mest fyrir laxveiðina og finnst skemmtilegast þegar maður þarf að hafa vel fyrir hlutunum. Ég vel gæði umfram magn í laxveiðinni og vil frekar njóta þess að landa hverjum fiski en að landa mörgum. Evening dress, bæði lítil túba og fluga, hafa verið í uppáhaldi undanfarið og hafa verið að gefa vel. Arndilly fancy kom svo sterk inn í fyrra og svo er Silver sheep alltaf klassísk.“ Hjónin Tryggvi og Edda á góðri stund í Kjarrá. © Aðsend mynd (AÐSEND) Edda nefnir tvær ár sem eru í sérstöku uppáhaldi. „Ég er „alin upp“ í Sæmundaránni í Skagafirði og hún á alltaf sér­stakan stað í hjartanu. En núna í seinni tíð hefur Kjarráin þó verið í miklu uppáhaldi. Ég elska að ­klöngrast um í stórbrotinni náttúr­unni og ekki skemmir ­fyrir að þar er ekkert símasamband. Við höfum ­verið í mjög skemmtilegu holli þar í lok ágúst síðustu ár. Þá eru hængarnir alveg snarvitlausir og mikið aksjón.“ Edda á skemmtilega minningu úr Kjarrá en þá brotnaði stöngin þegar lax tók hjá Tryggva eiginmanni hennar. Við tók mikið samvinnuverkefni við að landa laxinum. Ævintýri í Kjarrá Minnisstæðasti laxinn kom einmitt á land í Kjarrá. „Þetta var reyndar lax sem Tryggvi maðurinn minn veiddi ­fyrir tveimur árum en það var ­mikið samstarfsverkefni ­okkar hjóna og Egils Ástráðs­sonar frænda sem var að gæda ­okkur í Kjarránni. Þar brotnaði stöngin um leið og fiskurinn tók og við tók mikið ævintýri þar sem Tryggvi var á hjólinu, Egill á stangarendanum og ég á ­háfnum. Þetta tókst allt saman við mikinn fögnuð viðstaddra.” Edda að landa laxi í Grímsá. Fram undan er spennandi veiðisumar hjá Eddu, sem segist vera alveg þokkalega sett veiðilega séð. Laxveiðisumarið byrji í Þverá í Borgarfirði en síðan sé hún einnig búin að bóka ferð í Haukadalsá, Grímsá og auð­vitað Kjarrá. Spurð hvort einhver ný á sé í sigtinu svarar hún: „Já, ég á Norður- og Austurland alveg eftir og er mjög spennt fyrir því að sækja stórlaxa þangað. Svo eru orðin nokkuð mörg ár ­síðan ég fór í Sæmundarána og ég væri alveg til í að fara þangað aftur.“ Edda með fallegan hausthæng, sem hún landaði í Kjarrá, en áin er í miklu uppáhaldi hjá henni. Náttúran og félagsskapurinn Stangaveiðin er sífellt að verða vinsælli og er Edda með ­nokkur góð ráð fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref. „Húfa og góð gleraugu eru nauðsynleg ásamt góðum félagsskap og góðum veitingum til að maula á bakkanum. Þá kemur allt hitt í róleg­heitunum. Ef fólk er að fara í flottar ár og þekkir ekki aðstæður myndi ég alltaf fjárfesta í að fá gæd. Bæði til að vera að veiða á réttum stöðum og líka til að fá aðstoð með köstin. Fátt hreinsar hugann eins og að standa úti í á, lesa ­vatnið, finna réttu fluguna og sækja fisk. Náttúran og félagsskapurinn skipta ótrúlega miklu máli.“ Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Veiði , sem fylgdi Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .

Share this article