Innlent | mbl | 6.6.2026 | 19:11 Ljósmyndarar æfir yfir drónabanni Náttúruverndarstofnunar Jeroen (t.v.) segir fráleitt að banna ljósmyndun með drónum að fjallabaki líkt og hann hefur stundað um árabil. Samsett mynd/Aðsend Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Ljósmyndarinn Jeroen Van Nieuwnhove segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við Náttúruverndarstofnun, en í sumarbyrjun synjaði stofnunin skyndilega öllum umsóknum um drónaljósmyndun á vegum sjálfstæðra ljósmyndara við margar af helstu náttúruperlum Íslands. Drónaljósmyndun í þjóðgörðum landsins hefur verið háð leyfi stofnunarinnar og segir Jeroen samstarfið við stofnunina hafa gengið vel, þar til nú. Jeroen hefur starfað um árabil sem ljósmyndari á Íslandi við góðan orðstír og segir hann ákvörðunina hafa komið flatt upp á sig. Hann segir stofnunina bera fyrir sig rökleysu og tilfinningar og mismuna sjálfstæðum ljósmyndurum, þar sem ekki standi til að banna þyrluflug eða kvikmyndatökur á vegum Hollywood-mynda eða erlendra stórfyrirtækja á sömu svæðum, sem valdi margfalt meiri spjöllum á umhverfi og náttúru. Ljósmyndir Jeroen hafa vakið mikla athygli fyrir að fanga fegurð landsins. Ljósmynd/Aðsend Banna helstu landkynningu Íslands Myndir Jeroen hafa margoft vakið athygli erlendis en hann er með um tvöhundruð og fimmtíuþúsund fylgjendur á Instagram og hafa myndir hans iðulega verið birtar hjá virtum miðlum á borð við National Geographic. „Í nokkur ár hef ég fengist við drónaljósmyndun á íslenska hálendinu og kennt námskeið í því með tilskildum leyfum frá Náttúruverndarstofnun. Ég hef alltaf sótt um á réttum tíma, farið eftir öllum skilyrðum og aldrei fengið neinar athugasemdir, hvorki frá landvörðum, öðrum gestum né stofnuninni sjálfri og hef þar að auki alltaf greitt fullt atvinnuleyfisgjald fyrir starfsemina,“ segir Jeroen í samtali við mbl.is. Þann 17. maí birti stofnunin nýja stjórnsýsluframkvæmd þar sem blátt bann er lagt við drónaflugi í „afþreyingar- og fræðsluskyni“ og er honum þar með bannað að fljúga myndatökudróna sínum við Goðafoss, Gullfoss, Geysi, Dyrhólaey, Látrabjarg og Mývatn allan ársins hring auk þess sem myndataka við Hornstrandir, Snæfellsjökulsþjóðgarð og Þjórsárver er óheimil yfir sumarið svo dæmi séu nefnd. Jeroen segir fráleitt að stofnunin ætli sér að banna drónaljósmyndun við þessa staði, í ljósi þess sem drónanotkun sé sjálfsagður hlutur í starfi ljósmyndara í dag. Ljósmyndir af íslensku landslagi og náttúru séu þar að auki helsta landkynning Íslands út á við. Jeroen segir skrýtið að stofnunin telji meira rask af drónamyndatöku hans en tökum á Hollywood myndum. Ljósmynd/Aðsend „Það er ekki hægt að andmæla tilfinningum“ Jeroen segist ekki hafa fengið að sjá nein haldbær rök frá Náttúruverndarstofnun fyrir banninu en í eldri leyfisbréfum fyrir starfsemi hans að Fjallabaki taldi stofnunin ekki líklegt að hún hefði neikvæð áhrif á verndargildi svæðisins og náttúru. Nú ári síðar komist stofnunin að þeirri niðurstöðu að starfsemi hans hafi neikvæð áhrif á einkenni svæðanna, þ.e. kyrrð og almenna náttúruupplifun. „Stofnunin hefur ekki lagt fram neina mælingu, vettvangsrannsókn né ritrýnd gögn sem sýna að drónar á Fjallabaki trufli dýralíf eða gesti,“ segir Jeroen og bendir á að stofnunin lét sjálf gera könnun á viðhorfum gesta á Fjallabaki árið 2019 þar sem fáir telja sig verða fyrir truflun af völdum fljúgandi umferðar. „Þegar ég bað skriflega um vísindalegan grundvöll synjunarinnar var svarið að niðurstaðan byggði á „umhverfismati sem unnið var af staðbundnum ráðgjafa stofnunarinnar”. Ég hef ekki fengið að vita hver sá ráðgjafi er. Mér hefur ekki verið sýnt hvað hann skoðaði, hvað hann mældi eða á hvaða rökum hann byggði. Þegar ég lagði fram desíbelmælingu fyrir drónahljóð svaraði synjunarbréfið því einu að „stofnunin sé ekki sammála”, án þess að nokkur mæling fylgdi með,“ segir Jeroen. „Það er ekki hægt að andmæla tilfinningum,“ bætir hann við. Jeroen vonast eftir því að því sanngjörn niðurstaða fáist í málið. Ljósmynd/Aðsend Afhverju ekki að banna frekar bíla og gönguskó? Jeroen segir mikla mótsögn í því að banna eigi dróna á þeim óljósu forsendum sem stofnuninleggi upp með. Í stjórnaráætlun Náttúrverndarstofnunar verndargildi friðlands ekki talin stafa ógn af drónaumferð. „Samkvæmt stjórnaráætluninni er utanvegaakstur og annað rof talin vera helsta ógnin. Það er skaðlega notkunin sem maður setur reglur um, ekki tækið sjálft. Stofnunin bannaði ekki bíla þótt sumir aki utan vega. Hún bannaði ekki gönguskó þótt sumir gangi utan stikaðra leiða. Hún bannaði hvorki hesta né reiðhjól. En hún ákvað að hafna drónaleyfum til fræðslu og afþreyingar sérstaklega,“ segir Jeroen. Hann nefnir sem dæmi að neytendadróninn sem hann noti gefi frá sér um 81 desíbel í eins metra fjarlægð. Hljóðið dofni með fjarlægð og í hundrað metra fjarlægð heyrist vart í honum. „Þyrla í 150 metra hæð mælist 95 til 105 desíbel hjá þeim sem stendur undir. Rúta á fjallvegi 80 til 90 desíbel og fjórhjól sömuleiðis. Þyrlan er hávaðameiri, Rútan er hávaðameiri. Fjórhjólið er hávaðameira. Allt er þetta leyft,“ segir Jeroen. Náttúruverndarstofnun viti betur Jeroen segist vera allur af vilja gerður til að leysa málið og starfa eftir þeim reglum sem Náttúruverndarstofnun setur, og segir hann aðra innan ljósmyndarastéttarinnar vera sömu skoðunar. Hann hafi hins vegar talað fyrir daufum eyrum stofnunarinnar og hún ekki haft neinn áhuga á að koma til móts við hans sjónarmið eða vinna málið í sameiningu. Hann hefur nú kært synjun stofnunarinnar til Umhverfis-, orku- og loftlagsmálaráðuneytisins og segist hann vonast eftir því að lausn fáist sem allir geti unað við. Jeroen kallar eftir því að drónaflug til afþreyingar verði leyft með skynsamlegum skilyrðum eftir svæðum líkt, en þeirri nálgun hefur Náttúruverndarstofnun beitt í Vatnajökulsþjóðgarði. „Í Vatnajökulsþjóðgarði er drónaflug til afþreyingar almennt leyft, með skýrum reglum eftir svæðum þar sem landverðir geta veitt munnlegt leyfi eftir aðstæðum. Þetta er nákvæmlega sá rammi sem önnur friðlýst svæði stofnunarinnar ættu líka að lúta.“ „Náttúruverndarstofnun kann alveg að semja svona reglur. Hún hefur þegar gert það. Hún kýs einfaldlega að gera það ekki,“ segir Jeroen að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Fyrrum leikmaður United án félags Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Rosaleg 184 milljóna þakíbúð í miðbænum Knúðu fran oddaleik gegn Martin Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Tveir á bráðamóttöku eftir bílveltu á Suðurlandi Segir tillögur fela í sér skerðingar Vindorka eykur flutningskostnað Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Fyrrum leikmaður United án félags Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Rosaleg 184 milljóna þakíbúð í miðbænum Knúðu fran oddaleik gegn Martin Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óræð Íslandstenging í finnskri gröf Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Tveir á bráðamóttöku eftir bílveltu á Suðurlandi Segir tillögur fela í sér skerðingar Vindorka eykur flutningskostnað Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna