Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Opin fyrir samtali við ljósmyndara

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.6.2026 | 15:52 Opin fyrir samtali við ljósmyndara Sigrún segir Náttúruverndarstofnun opna fyrir samtali við drónaljósmyndara. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Árni Sæberg. Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar, segir aukna eftirspurn, truflanir og óhöpp vera ástæðu þess að stjórnsýsluframkvæmd fyrir leyfisveitingar á flugi dróna á friðlýstum svæðum hafi verið breytt. Óánægja hefur ríkt meðal íslenskra atvinnuljósmyndara vegna breytinga á framkvæmdinni en þeir telja hana gera drónaljósmyndun erfiðara um vik á miklum fjölda verndaðra og friðlýstra svæða í umsjá Náttúruverndarstofnunar. Frétt af mbl.is Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Viðbrögð við aukinni aðsókn Sigrún segir að ætlunin hafi ekki verið að gera út af við drónaljósmyndun og að ekki sé um að ræða um fortakslaust bann við notkun dróna heldur sé aðeins verið að bregðast við aukinni aðsókn á svæðin. Hún segir alveg ljóst að ljósmyndarar muni áfram fá að stunda sína iðju samkvæmt nýrri framkvæmd. „Eftirspurnin fyrir því að fljúga dróna í afþreyingarskyni hefur aukist verulega á undanförnum árum og það ber á því að gestir kvarti yfir truflun og því þarf að reyna finna sameiginlega lendingu fyrir alla aðila sem vilja njóta náttúrunnar á þessum svæðum.“ „Að því er ég best veit höfum við þó ekki verið að synja miklum fjölda umsókna um drónaflug, en það er ekki farið í svona breytingar nema það sé tilefni til. Óskir um drónaflug hafa farið vaxandi og þess vegna byrjar þetta verkefni, en við vinnum eftir reglum sem þegar er búið að setja í friðlýsingarskilmálum og stjórnunar- og verndaráætlunum svæðanna“ segir Sigrún í samtali við mbl.is. Verndun geti byggst á ólíkum forsendum Hún segir að mörgu að huga þegar komi að því að passa upp á friðlýst svæði og því séu reglur um drónaflug oft ólíkar eftir svæðum þar sem friðun þeirra byggi á ólíkum forsendum. „Markmiðin með friðlýsingunum eru svolítið breytileg og gestakomur eru mjög misjafnar. Stundum er verið að vernda lífríki, stundum er verið að vernda kyrrðarupplifun og svo eru aðrir staðir mjög fjölsóttir þar sem þarf að taka tillit til mannfjölda og flugi yfir hann,“ segir Sigrún. „Sömu svæðin eru því eftirsótt út frá svo mörgum sjónarhornum.“ Vilja taka upp samtal Sigrún segir ljósmyndun á íslenskri náttúru afar mikilvæga, bæði til að skrásetja náttúruna fyrir komandi kynslóðir en ekki síður til að auka hróður Íslands út á við og að Náttúruverndarstofnun sýni starfi ljósmyndara mikinn skilning. „Við skiljum að breytt framkvæmd á leyfisveitingum hafi valdið óánægju en línudansinn okkar þarna á milli að búa til kerfi sem allir aðilar geta sætt sig við, og í ljósi þess að ljósmyndarar hafa viðrað óánægju sýna með þessar breytingar, þá segir það okkur að við höfum ekki enn fundið rétta punktinn.“ segir Sigrún. Hún segir að stofnunin sýni því sjónarmiðum ljósmyndara mikinn skilning og að stefnt sé að því að taka upp frekara samtal við Ljósmyndarafélag Íslands sem fyrst til að reyna koma til móts við þau sjónarmið sem ljósmyndarar hafa viðrað. „Við viljum taka samtal við ljósmyndara og við höfum ekki sett endapunktinn við þetta, og vonumst til að geta komist að niðurstöðu sem allir geta sætt sig við,“ segir Sigrún að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fátíður en sláandi atburður Opin fyrir samtali við ljósmyndara „Vön því að vera hent út í djúpu laugina“ Hráefni úr héraði hjá Grös bistró „Bandaríkin eiga enn langt í land“ Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen Samkomulagi náð: „Ræsið vélarnar“ Norska konungshöllin neitar að tjá sig Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Mest lesið Í gær Í vikunni Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Fátíður en sláandi atburður Opin fyrir samtali við ljósmyndara „Vön því að vera hent út í djúpu laugina“ Hráefni úr héraði hjá Grös bistró „Bandaríkin eiga enn langt í land“ Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Þinglok nálgast nú óðfluga Full ástæða til þess að vera á varðbergi Fleiri leiðir inn á húsnæðismarkað Mest lesið Í gær Í vikunni Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article