Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.6.2026 | 20:05 Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun Tómas Aron kom fyrstur í mark eftir tæplega 15 klukkutíma hlaup upp um fjöll og firnindi. Ljósmynd/Magnús Stefán Sigurðsson Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tómas Aron Viggósson gerði sér lítið fyrir og sigraði 106 kílómetra hlaup Hengils Ultra um helgina þegar hann kom í mark á tímanum 14:34:14. Blaðamaður sló á þráðinn og eðli máls samkvæmt var fyrsta spurning um ástand líkamans eftir slíkt hlaup. „Líkaminn er bara í þokkalegu standi. Það var svo ótrúlega blautt og maður lendir í svo mikilli leðju og drullu sem maður einhvern veginn sekkur ofan í og þá fær maður steina í skóna og er að hlaupa með steina í skónum í svolítinn tíma. Þannig maður er aðeins marinn á tánum og svoleiðis en að öðru leyti bara góður,“ segir Tómas léttur. Tómas Aron segir markmið hans í hlaupinu hafa verið að klára og njóta. Ljósmynd/Magnús Stefán Sigurðsson Byrjaði að hlaupa fyrir tveimur árum síðan Þegar blaðamaður spyr hvernig undirbúningnum hafi verið háttað kemur nokkuð merkilegt í ljós. Það eru nefnilega ekki nema tvö ár síðan Tómas byrjaði að hlaupa. „Hlaupin snérust ekkert um að koma mér í eitthvað líkamlegt stand heldur byrjaði ég að hlaupa bara fyrir andlega líðan,“ segir Tómas. Það sem ekki er síður merkilegt er að formleg hlaupaþjálfun Tómasar hófst ekki fyrr en fyrir 8 mánuðum. Hann hafði þá samband við Svein Atla Árnason hjá Vaxandi hlaupaþjálfun og rétti honum taumana. „Ég fylgi fyrirmælum hans frá A til Ö. Stundum líður manni vel og langar að hlaupa lengra og stundum líður manni ekki jafn vel og langar að hlaupa styttra. En ég ákvað alltaf að fylgja planinu og treysta því. Ég missti varla úr æfingu,“ segir Tómas. Það er því aðeins eitt ár síðan Tómas hljóp sitt fyrsta langa keppnishlaup en þess má til gamans geta að lengsta hlaup Tómasar fyrir helgi var einmitt næstlengsta vegalengd sem Hengill Ultra býður upp á, 53 kílómetrar. Hann bætti því ríflega í og fór tvöfalt lengra en hann hafði áður farið. „Mín fyrstu hlaup voru síðasta sumar, þar á meðal 53 kílómetra leiðin í Hengil Ultra og fljótlega eftir það fór ég að pæla í 106 kílómetra hlaupinu. Þegar þú hleypur 53 kílómetrana mætir þú 106 kílómetra hlaupurunum í brautinni og ég bar svo ótrúlega mikla virðingu fyrir þeim þegar ég sá þau koma niður fjallið, þá búin að hlaupa alla nóttina,“ segir Tómas. Að hlaupa hægt er vænlegast til vinnings Spurður hvað hafi komið honum mest á óvart þegar hann byrjaði í skipulagðri hlaupaþjálfun segir hann það vera hvað það skili miklum árangri að hlaupa hægt. „Maður heldur alltaf að það þurfi að fara út alveg á milljón sko, en það er eiginlega öfugt. Um 80% af heildaræfingarplaninu er bara á hægu pace-i, þessum spjallhraða.“ Tómas segist ekki hafa haft neitt sérstakt markmið í hlaupinu annað en það að klára og njóta og að það sé margt sem hafi áhrif á gengi í svona hlaupi. „Að hlaupa til að vinna ræðst af svo mörgu, til dæmis veðrinu, dagsforminu, hvernig maginn höndlar allt þetta hlaupagel og hversu mikið maður nær að drekka. Það getur margt farið úrskeiðis á svona löngum tíma,“ segir Tómas. Vel var tekið á móti Tómasi eftir krefjandi hlaup. Ljósmynd/Magnús Stefán Sigurðsson Drakk aðeins 250 millilítra á 23 kílómetra kafla Og hvernig gekk hlaupið? „Þetta var svolítið fyrri hálfleikur og seinni hálfleikur. Fyrri hringurinn gekk ótrúlega vel vegna þess að ég náði að koma niður örugglega fjórum til fimm lítrum af vökva og mikið af næringu. Það var allt tipp topp í fyrri hringnum og svo var seinni hringurinn eins lélegur og fyrri var góður,“ segir Tómas og hlær. Í seinni hring hafi vökva- og næringarinntaka lotið í lægra haldi og í um 23 kílómetra hafi hann aðeins drukkið í kringum 250 millilítra af vatni. Sjálfboðaliði í Sleggjubeinsskarði hafi þá tekið eftir því hversu lítið hann hafi drukkið. „Hún hjálpaði mér ótrúlega mikið þar, lét mig bara setjast niður og fékk mig til að drekka eins mikið og ég gat áður en ég fór aftur af stað og þetta náttúrulega hjálpar mér bara að klára hlaupið,“ segir Tómas og þakklætið leynir sér ekki. Spurður hver sé lykillinn að því að klára svona langt og krefjandi hlaup segir hann mikilvægt að nálgast æfingarnar á réttan hátt. „Maður getur náttúrulega aldrei stjórnað aðstæðum og veðri í keppni svo ég nálgaðist undirbúninginn þannig að þegar það kom vont veður í vetur þá fór ég út að hlaupa. Ég fór út að hlaupa í snjó, rigningu, gulri viðvörun og bara öllu. Ef æfingarnar eru erfiðar og jafnvel erfiðari en hlaupið sjálft þá er einhvern veginn auðveldara að komast í gegnum keppnishlaupið.“ En hvernig tekur þú á því þegar hausinn byrjar að efast í miðju hlaupi? „Þegar ástandið verður stórt, mikið og óyfirstíganlegt þá fer ég að brjóta verkefnið niður í styttri vegalengdir. Fá einn kílómetra í einu á úrið. Og ef ég á erfitt með að hlaupa þá bara labba. Áður en maður veit af er maður kominn í 106 kílómetra,“ segir Tómas að lokum. Frétt af mbl.is Tómas Aron kom fyrstur í mark Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bilaður bíll stöðvar umferð í Hvalfjarðargöngunum Árni Bald landaði þeim fyrsta í Brennu Íranir gera árás á Ísrael Trump strunsaði út úr viðtali Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun Fylgjast með keppni storknandi og flæðandi kviku Óræð Íslandstenging í finnskri gröf Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Katrín lofuð í Bretlandi Boðar fyrirsvarsmenn til fundar Malbikun Reykjanesbrautar frestað Fimm kærur borist vegna kaffistofu Samhjálpar Skrifum aldrei pulsa með ypsiloni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Nýjast á mbl.is » Bilaður bíll stöðvar umferð í Hvalfjarðargöngunum Árni Bald landaði þeim fyrsta í Brennu Íranir gera árás á Ísrael Trump strunsaði út úr viðtali Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaflaskil hjá bardagakind Skýrslan sýni ókosti krónunnar Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Stjórnvöld vakta ferðir rússnesks herskips Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Katrín lofuð í Bretlandi Boðar fyrirsvarsmenn til fundar Malbikun Reykjanesbrautar frestað Fimm kærur borist vegna kaffistofu Samhjálpar Skrifum aldrei pulsa með ypsiloni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun

Share this article