Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Konurnar mun harðari

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.8.2026 | 16:39 Konurnar mun harðari Vaskir menn og konur í Rauðavatn Ultra sem nú stendur í heilan sólarhring fyrir þá sem víla ekkert fyrir sér, skemmri tími er þó í boði en hlaupið er Íslandsmeistaramót. Ljósmynd/Sportmyndir.is/Gunnar Jónatansson Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta var erfið nótt. Það rigndi þegar við byrjuðum í gærkvöldi og rigndi í alla nótt sem gerði keppendum erfitt fyrir og margir sem duttu út,“ segir Sigurjón Ernir Sturluson sem ásamt Símonu Varei konu sinni hefur veg og vanda af Rauðavatn Ultra-hlaupinu sem nú er haldið í annað sinn, þó með nokkuð dræmari þátttöku en í fyrra. Keppt er í þriggja, sex, tólf og 24 klukkustunda hlaupi og reyna þátttakendur að hlaupa eins marga hringi og þolgæði þeirra leyfa. Sigurjón segir sex manns hafa hætt hlaupi í 100 kílómetra vegalengd en þess má geta að Rauðavatn Ultra er Íslandsmeistaramót í 100 kílómetra hlaupi en samhliða þeirri vegalengd er keppt í þeim fjórum greinum hlaupsins sem getið er hér að ofan og miðast við klukkustundafjölda. „Konurnar eru miklu harðari en karlarnir, þær eru enn þá allar í 24 tímunum,“ segir Sigurjón þegar við hann er rætt, um 22 klukkustundum eftir að hlaupið hófst klukkan 18 í gærkvöldi. Sólarhringshlaupinu lýkur því núna klukkan 18 en þeir sem hlupu hálft og heilt maraþon, sem hófst í morgun, eru nú allir búnir eða nánast. Konurnar eru mun harðari í Rauðavatn Ultra í ár að sögn Sigurjóns og hér hleypur valkyrja ein með bros á vör í regnsuddanum. Ljósmynd/Sportmyndir.is/Gunnar Jónatansson Er hlaupabólan sprungin? Þátttaka í hlaupinu er dræmari nú en í fyrra. „Það hefur bara verið þannig í allt sumar að skráning í hlaup hefur verið dræmari en vant er. Í fyrra var metár myndi ég segja, þá var bólan eins stór og hún getur orðið en ég held að hún hafi sprungið svolítið í sumar og í ár er þátttaka í hlaupum lélegri hjá nánast öllum en í fyrra,“ segir Sigurjón við blaðamann sem fékk sína hlaupabólu árið 1983 en þá var raunar um sjúkdóm að ræða, ekki eiginlegt hlaup. Er þetta mikla hlaupaæði síðustu ára þá komið að fótum fram? „Mjög margir eru að hlaupa en færri að keppa og ég veit bara ekki hvernig stendur á því,“ svarar Sigurjón sem aðspurður segir komandi Reykjavíkurmaraþon tæplega skýra dræma þátttöku í Rauðavatn Ultra en skráning í hlaupið var opin í allt sumar. Ánægja skín úr svipmóti konu sem skýlir sér undir regnhlíf en Rauðavatn Ultra var blautt hlaup í ár enda haustar að. Ljósmynd/Sportmyndir.is/Gunnar Jónatansson Hér má nálgast tölfræði og úrslit Rauðavatns Ultra Hér eru prýðisgóðar myndir Gunnars Jónatanssonar Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Konurnar mun harðari Diljá hetjan í Noregi Andri hóf endurkomuna Enn eru bundnir baggar í Ferjunesi Leika um fimmta sætið eftir stórsigur Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afurðaverðið fellur Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Lenti utan vegar eftir framúrakstur Afurðaverðið fellur Gleðigangan í beinu streymi Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Konurnar mun harðari Diljá hetjan í Noregi Andri hóf endurkomuna Enn eru bundnir baggar í Ferjunesi Leika um fimmta sætið eftir stórsigur Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Heppnar að vera hinsegin á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Lenti utan vegar eftir framúrakstur Afurðaverðið fellur Gleðigangan í beinu streymi Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“

Share this article