Innlent | mbl | 7.6.2026 | 23:02 Leyfa hádegisverð og þyrlulendingu við Jökulsárlón Ferðamenn við Jökulsárlón. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Náttúruverndarstofnun hefur samþykkt leyfi til viðburðarhalds og lendingar þyrlu við Jökulsárlón þann 30. júní. Þetta kemur fram í leyfisbréfi Náttúruverndarstofnunar. Ferðaskrifstofan Terra Islandica ehf. sótti um leyfi til að halda um tveggja klukkustunda hádegisverð fyrir sex manns í vík við Jökulsárlón, í um 15 mínútna göngufjarlægð frá Skúmskoti. Var einnig sótt um leyfi til að lenda þyrlu við Skúmaskot til að flytja gestina. Í leyfisbréfinu kemur fram að veitingaþjónusta muni setja upp borð, stóla og grill og mun undirbúningurinn taka um eina klukkustund. Annars koma ekki fram nánari upplýsingar um hvers konar hádegisviðburð sé að ræða eða fyrir hvern. Gæti valdið truflunum á varpstöðvum fugla Segir þar einnig að að mati Náttúruverndarstofnunar geti lending og brottför þyrlu við Jökulsárlón á þessum tíma valdið truflunum á varpstöðvum skúms, sem er tegund í bráðri hættu á Íslandi, og kríu, sem er í nokkurri hættu á Íslandi. „Varp á svæðinu er að hefjast og óljóst er hver dreifing og staðsetning varpsins verður á svæðinu. Við lendingu þyrlunnar verður að taka mið af varpinu og vera í sambandi við þjóðgarðsverði til samráðs um nákvæman lendingarstað. Að mati stofnunarinnar er unnt að draga úr áhrifum þyrlulendingar og – brottfarar ef skilyrðum leyfisins er fylgt.“ Setja skilyrði við veitingu leyfisins Veitti stofnunin þrátt fyrir það leyfi fyrir viðburðinum og lendingar þyrlu við lónið, þó með ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Svo sem að tilkynna skuli þjóðgarðsvörðum á svæðinu áður en lent er, með að minnsta kosti sólarhrings fyrirvara, óheimilt sé að hindra för gangandi gesta um svæðið og að vanda skuli frágang á svæðinu. Ef leyfishafi veldur náttúruspjöllum getur Náttúruverndarstofnun til dæmis lagt fyrir leyfishafa að afmá jarðrask og lagfæra gróðurskemmdir eða stöðvað verkefnið, en Vatnajökulsþjóðgarður er friðlýstur á grundvelli laga um Vatnajökulsþjóðgarð. Segir í 14. gr. þeirra laga að óheimilt sé að valda spjöllum eða raski á lífríki, jarðmyndunum, landslagi og menningarminjum innan þjóðgarðsins. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Maðurinn sem boðaði breytingar en villtist af leið Leyfa hádegisverð og þyrlulendingu við Jökulsárlón Danir slegnir: „Átakanlegt fyrir alla“ Robin van Persie rekinn Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frankie sem fór ekki til Hollywood Kaflaskil hjá bardagakind Óræð Íslandstenging í finnskri gröf Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Katrín lofuð í Bretlandi Drengurinn er fundinn Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Nýjast á mbl.is » Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Maðurinn sem boðaði breytingar en villtist af leið Leyfa hádegisverð og þyrlulendingu við Jökulsárlón Danir slegnir: „Átakanlegt fyrir alla“ Robin van Persie rekinn Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bjórrisarnir búa sig undir blautasta HM sögunnar Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Persaflóahermaður hjólar um Ísland Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Katrín lofuð í Bretlandi Drengurinn er fundinn Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun