Jökulsárlón ferðaþjónusta ehf. hagnaðist um 637 milljónir króna á síðasta ári, samanborið við 544 milljónir árið áður. Velta og hagnaður hafa aukist nokkuð stöðugt eftir Covid-heimsfaraldurinn og var árið 2025 metár hjá félaginu. Tekjur félagsins námu 1.363 milljónum króna, samanborið við 1.199 milljónir árið áður. Hagnaður sem hlutfall af tekjum var því um 47% á síðasta ári. Rekstrarhagnaður, það er hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld, nam 518 milljónum króna, samanborið við 403 milljónir árið áður, og jókst því um tæp 29%. Jökulsárlón ferðaþjónusta rekur bátsferðir um Jökulsárlón á Breiðamerkursandi auk söluskála á svæðinu. Í skýrslu stjórnar kemur fram að fjöldi ferðamanna til landsins hafi verið svipaður árin 2024 og 2025. Tekjur félagsins hafi hins vegar aukist hlutfallslega meira en kostnaður sem skýrir bætta rekstrarafkomu. Fjárhagsstaða félagsins er sterk. Eignir námu 3.936 milljónum króna í árslok og eigið fé 3.733 milljónum. Eiginfjárhlutfall var 94,8%. Félagið átti jafnframt um 2,4 milljarða í verðbréfum og tæplega 1,4 milljarða í handbæru fé. Á síðasta ári voru greiddar 128 milljónir króna í arð. Stjórn leggur til að greiddur verði 150 milljóna króna arður á þessu ári. Einar Björn Einarsson er framkvæmdastjóri og eigandi félagsins. Stjórnendur eru þó varfærnir um horfurnar. Þeir segja átök milli þjóða og hækkandi eldsneytisverð geta leitt til fækkunar ferðamanna og gera ráð fyrir að tekjur geti lækkað árið 2026. Rekstrarréttindi fyrir farþegabáta á Jökulsárlóni hafa verið framlengd til ársloka 2026 og gert er ráð fyrir að ríkissjóður bjóði reksturinn út á árinu.