- What: Former IMF economist warns of UK debt crisis
- Impact: 50% chance of debt crisis by 2030
Fyrrverandi aðalhagfræðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), Ken Rogoff, telur líklegra en ekki að skuldakreppa muni ríða yfir Bretland fyrir lok áratugarins. The Telegraph greinir frá. Rogoff sagði að nokkur stór áföll á undanförnum árum, þar á meðal Covid-faraldurinn, innrás Rússa í Úkraínu og stríðið í Íran, hafi leitt til þess að nú séu „meiri en 50:50 líkur“ á skuldakreppu í Bretlandi fyrir árið 2030 sem myndi neyða ríkið til að ráðast í umfangsmiklar skattahækkanir eða verulegan niðurskurð. Hann bætti við að ef nýleg áföll verða til þess að Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, missi tök á verðbólgu, þá gæti Bretland jafnvel þurft á stærri björgunarpakka að halda með stuðningi frá AGS, sem gegnir hlutverki lánveitanda til þrautavara. „Í slíkum aðstæðum yrði kallað í AGS til að veita tæknilega aðstoð,“ sagði Rogoff, sem starfar í dag sem prófessor við Harvard-háskólann. Sir Charlie Bean, fyrrverandi varaseðlabankastjóri peningastefnu við Englandsbanka og fyrrum stjórnandi við sjálfstæðu fjárlagastofnunina OBR, hefur jafnframt varað við að raunveruleg hætta sé á mögulegu inngripi frá AGS. Í umfjölluninni er bent á að skuldir hins opinbera í Bretlandi stefni í að verða yfir 3 þúsund milljarðar punda í september næstkomandi. Skuldahlutfall Bretlands nálgast 100% af vergri landsframleiðslu. Rachel Reeves, fjármálaráðherra Bretlands, hefur aukið skuldir umtalsvert frá því að ríkisstjórn Verkamannaflokksins tók til valda sumarið 2024. Í fyrstu fjárlögum hennar voru ríkisútgjöld aukin um 70 milljarða dala, en þar af var aðeins helmingur fjármagnaður með aukinni skattheimtu.