- What: UK government spending and debt update
- Impact: No security relevance
Lántökukostnaður breska ríkisins jókst í morgun eftir að Andy Burnham, borgarstjóri Manchester, vann stórsigur með 55% atkvæða í aukakosningum sem fóru fram í Makersfield-kjördæmi, sem er á milli Manchester og Liverpool, í gær. Niðurstaðan var betri en Verkmannaflokkurinn hafði átt von á. Talið er að Burnham geti nú gert alvöru atlögu að því að verða næsti leiðtogi flokksins. Ávöxtunarkrafa á tíu ára breskum ríkisskuldabréfum hefur hækkað úr 4,76% í 4,83% í morgun eða um 0,07 prósentustig. Í umfjöllun The Telegraph segir að þrátt fyrir að þetta virki sem lítil hækkun þá hafi hún mikil áhrif á lántökukostnað breska ríkisins í ljósi þjóðarskuldar upp á nærri 3 þúsund milljarða punda. Gengi breska sterlingspundsins gagnvart Bandaríkjadalnum lækkaði jafnframt um 0,3% og fór undir 1,32 í fyrsta sinn síðan í apríl. Burnham hefur áður gefið til kynna að ríkisútgjöld og skuldsetning ríkissjóðs gæti aukist komist hann til valda. Á síðasta ári hækkaði ávöxtunarkrafa breska ríkisskuldabréfa eftir að hann sagði að Verkamannaflokkurinn yrði að hætta að reiða sig á álit skuldabréfamarkaðarins. Hann hefur síðan heitið því að halda sér innan þess ramma sem Rachel Reeves fjármálaráðherra hefur sett fyrir ríkisfjármálin sem miðar að því að ná skuldahlutfallinu niður til lengri tíma.