Innlent | mbl | 8.6.2026 | 11:45 Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi „Meira getur enginn listamaður beðið um,“ segir Bubbi Morthens við íslenska þjóð, staddur í laxveiði í Þrændalögum og nýbúinn að sporðrenna ljúffengum elg norskum. mbl.is/Eyþór Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég var að borða elg, það var geggjuð kássa, Jesús Pétur, María og hin heilaga jómfrú drengur, það er nú svoleiðis,“ segir Bubbi Morthens sem, eins og alþjóð er kunnugt, ríður sjaldnast við einteyming, í samtali við mbl.is, staddur í laxveiði í Þrændalögum í Noregi þar sem Ólafur helgi konungur féll í Stiklastaðabardaga sumarið 1030. Bubbi hefur þó ekki fallið í mörgum bardögum enn þá fyrir utan kannski að fá sér sígarettu á góðum degi þegar hann hafði áður hætt að reykja og vakti fyrirsögn eins íslensks fjölmiðils um það mál mikinn úlfaþyt. Hafa margir þó lent í því sama í reykbindindum. Í þessu viðtali, að elgsáti loknu, falaðist mbl.is eftir tilfinningum söngvaskáldsins og dægurlagadrekans Morthens, að loknu gríðarstóru verkefni og tvennum þéttsetnum tónleikum um helgina sem fæstir Íslendingar fóru varhluta af. Fyrsta spurning er þar með einföld: Hvernig líður þér eftir helgina? „Tónleikarnir í einföldu orði, ef ég ætti að gefa þeim einkunn, þá verð ég að segja að það tók mig 47 ár sem atvinnutengdur tónlistarmaður að gera þetta sem ég gerði um helgina. Einkunnin yrði bara „frábært“,“ svarar Bubbi og er næst spurður út í samanburð við fimmtugsafmælistónleika hans 6. júní 2006. Frétt af mbl.is Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Bubbi er fullur þakklætis eftir helgina, þar sem hann gladdi aðdáendur sína með tónleikum sem lengi munu uppi verða. mbl.is/Eyþór „Hefði getað tekið klukkutíma í viðbót“ „Þá ætla ég bara að svara eins og krakkarnir, þessir tónleikar voru „next level“, það er svoleiðis,“ svarar viðmælandinn og segir tónleikana hafa lengst með frammistöðu tónlistarfólksins Diljár Pétursdóttur og Kristmundar Axels Kristmundssonar sem stigu á svið en til að hafa tölfræðina örugga hrópar Bubbi yfir laxveiðiskálann „Brynjar, hvað voru þetta mörg lög í gær [á laugardaginn]?“ Brynjar hrópar til baka yfir skálann 36 lög auk eins framlags annarra tónlistarmanna og Bubbi staðfestir þetta í símann við blaðamann sem spyr þá hvernig líðan hans hafi verið á sviðinu síðustu lögin af löngum lista. „Ég hefði getað tekið klukkutíma í viðbót,“ svarar Bubbi keikur, „í alvörunni,“ bætir hann við og ber tónleikagestum á föstudag og laugardag vel söguna. Frétt af mbl.is Bubbi sleit liðband Það var sannarlega öskursungið í Laugardalshöll eins og Bubbi minnist á. „Þetta var algjörlega eins og það átti að vera.“ mbl.is/Eyþór „Meira getur enginn listamaður beðið um“ „Þau öskursungu frá fyrsta lagi í þrjá klukkutíma,“ segir tónlistarmaðurinn og aðspurður í framhaldi að ekkert á þessum tvennum tónleikum hafi farið úrskeiðis. „Þetta var algjörlega eins og það átti að vera. Það var byr og við sigldum meðfram ströndinni og eirðum öngvu.“ Hvað viltu þá segja við íslensku þjóðina sem þarna var að nokkrum prósentum stödd um helgina? Ekki stendur á svarinu. „Mig langar að segja takk fyrir ástina, kærleikann, velviljann og þolinmæðina. Takk fyrir að hafa verið með mér öll þessi ár og ekki labbað frá mér heldur faðmað mig. Meira getur enginn listamaður beðið um,“ segir Bubbi Morthens við íslenska þjóð, fullur þakklætis eftir vel heppnaða sjötugsafmælistónlistarveislu sem spannaði allan ferilinn sem er langur í báða enda. Frétt af mbl.is Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Bubbi segir það hafa tekið sig 47 að gera það sem hann gerði um helgina, þegar hann fyllti Laugardalshöll í tvígang. mbl.is/Eyþór „Einhvers staðar er ég tólf ára“ Fram undan er ýmislegt hjá rokkgoði á áttræðisaldri, Bubba fellur aldrei verk úr hendi og hann er ekki á leiðinni að spila golf með frítt í sund og strætó þótt eiginlegum eftirlaunaaldri sé formlega séð náð. Bubbi sagði raunar við blaðamann í símtali á föstudaginn, forspjalli að því sem hér birtist, að tíminn væri ekki línulegur, hann væri sveigjanlegur. „Mjög líklega eru til hliðarheimar við þennan heim og ég hef engar áhyggjur, því einhvers staðar er ég tólf ára í einhverjum hliðarheimi, ég er bara þar,“ sagði Bubbi á föstudaginn en tólf ára varð hann einmitt sumarið '68 sem aldeilis er til skrásett af sagnfræðilegri nákvæmni í samnefndu lagi sem Bubbi kynnti eitt sinn inn á tónleikum á Púlsinum árið 1990 með þeim orðum að sumarið '68 hefðu þeir vinirnir setið í jarðhýsi þar sem nú er Hagkaup í Skeifunni, reykt njóla og lesið þýsku klámblöðin Week-end sex Color sem á þeim tíma áttu sér blómlega útgáfu. Frétt af mbl.is Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Frá sjötugsafmælistónleikum Bubba um helgina. Skáldið segir tímann ekki línulegan heldur sveigjanlegan. mbl.is/Eyþór Lífið með alls konar plön „Dagskráin í sumar er að ég ætla að koma heim núna eftir viku, eftir laxveiði í Noregi, og fara beint í stúdíó og byrja að vinna að næstu plötu með honum Halldóri Gunnari [Pálssyni], við erum reyndar byrjaðir að vinna hana. Síðan ætla ég að fara með fjölskyldunni til Danmerkur og eiga tíma þar. Svo ætla ég í Laxá í Aðaldal og eiga þar dágóða stund,“ segir Bubbi af sumrinu '26 sem kannski verður tilefni annars lags enda segist hann hafa í hyggju að bóka Laugardalshöllina undir níræðisafmælið eftir 20 ár. „Svo er lífið með alls konar plön en það skiptir mig engu, þú þarft að hafa markmið og vakna með tilgang,“ segir Bubbi Morthens að lokum sem sjötugur stóð á sviði í Laugardalnum um helgina og gladdi aðdáendur sína með tónleikum sem lengi munu uppi verða. Líklega ekki þeim síðustu um daga listamannsins. Frétt af mbl.is Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Munu ekki selja Frakkann Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Átti erfitt með að nálgast þrítugt Leyndarmálið á bakvið glóandi húð og betri svefn Húsið á sléttunni mætir aftur Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Kærkomið nýtt líf á Þingvöllum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna Boðar fyrirsvarsmenn til fundar Rússar reyni að átta sig á samstarfi bandamanna Hafna kröfum foreldra um minni skjátíma Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Ekkert krabbamein tilefni fleiri nýrra lyfja „Tekur tíma fyrir hausinn að gleyma sársaukanum“ Eftirlýstur hrækti í andlitið á tveimur Drengurinn er fundinn Settu met í sætanýtingu í maí Bubbi sleit liðband Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Nýjast á mbl.is » Munu ekki selja Frakkann Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Átti erfitt með að nálgast þrítugt Leyndarmálið á bakvið glóandi húð og betri svefn Húsið á sléttunni mætir aftur Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Kærkomið nýtt líf á Þingvöllum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafna kröfum foreldra um minni skjátíma Bjórrisarnir búa sig undir blautasta HM sögunnar Sóttu ferðalanga inn á Mælifellssand „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Ekkert krabbamein tilefni fleiri nýrra lyfja „Tekur tíma fyrir hausinn að gleyma sársaukanum“ Eftirlýstur hrækti í andlitið á tveimur Drengurinn er fundinn Settu met í sætanýtingu í maí Bubbi sleit liðband Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði