Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Ég á Bubba Morthens mjög mikið að þakka“

Read Full Article →

Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Bubbi Morthens, fagnaði sjötugsafmæli sínu um helgina með stórtónleikum í Laugardalshöllinni. Afmæliskveðjum hefur rignt yfir Bubba þar sem fólk rifjar upp bæði sögur af kynnum við hann og tónlist hans. Ólafur Páll Gunnarsson tók saman nokkrar kveðjur í Rokklandi á Rás 2 þar sem bæði vinir og kollegar sendu inn sögur af veiðiferðum, hvatningaræðum og tónleikaferðalögum. Má þar meðal annars nefna kveðju frá forseta Íslands. Sjaldan hitt manneskju sem vill gefa jafn mikið af sér „Ég á Bubba Morthens alveg ótrúlega mikið að þakka,“ segir söng- og leikkonan Elín Sif Halldórsdóttir, eða Elín Hall. „Ég kynntist honum þegar ég stökk inn í söngleikinn Níu líf til að leika hann sem ungling. Hann kenndi mér að reykja eins og hann hefði gert og að boxa eins og hann.“ „Hann setti sig allan í verkið og var mjög nákvæmur. Það var svo augljóst hvað honum þótti vænt um þessa sýningu en líka hvað honum þótti vænt um alla sem komu að henni.“ Elín minnist þess að hafa verið skíthrædd fyrir fyrstu sýninguna á stóra sviði Borgarleikhússins. „Ég var nýútskrifuð og skjálfandi á beinunum en Bubbi hvatti mig áfram eins og hann væri að hvetja fótboltaleikmenn á landsleik.“ Þetta gerði hann líka á öllum þeim 170 sýningum sem hún lék eftir það. „Ég hef sjaldan hitt manneskju sem er eins áköf í að vilja gefa af sér. Bubbi gaf mér eitt af mínum stóru giggum og bauð mér að syngja inn á lag með sér til að lyfta mér upp. Í þau skipti sem ég hikaði eða efaðist þá sagði hann mér að gefa í. Því þannig er Bubbi. Ekki bara við mig heldur líka við allt unga fólkið sem hefur leitað til hans.“ „Það er ekki sjálfsagt að goðsagnir þjóðarinnar nenni að standa í því að vökva nýgræðinga. Ég á Bubba Morthens mjög mikið að þakka.“ Söng betur en Bob Dylan Myndlistarmaðurinn Jón Óskar Hafsteinsson kynntist Bubba fyrir 53 árum þegar hann var farandverkamaður í Bolungarvík. Þetta var fallegt sumar en eitt kvöldið á göngu heyrði hann skelfingaróp hljóma yfir bæinn. „Ég lít upp og var þá við hliðina á nýbyggingu. Ofan á henni stendur ungur maður, gríðarlega fallegur, ber að ofan eins og grískur guð. Ég dreg þá ályktun að þarna sé einhver sem ætli að fyrirfara sér.“ Jón Óskar kallaði til mannsins, gekk upp til hans og settist niður með honum. „Hann var gríðarlega ósáttur, hafði verið svikinn um laun.“ Þá stakk Jón Óskar upp á því að þessi ungi maður kæmi með honum niður í frystihús Einars Guðfinnssonar, þar væri nóga vinnu að fá og launin alltaf greidd. Maðurinn gekkst við þessu og þeir sóttu sjópokann hans og gítar. Þegar þeir voru að koma sér fyrir á herbergi Jóns Óskars um kvöldið dró maðurinn upp gítarinn og Jón Óskar hugsaði með sér að nú væri kominn enn einn rútubílasöngvarinn sem færi að syngja Þórsmerkurljóð. „Nema þessi drengur fer að syngja Bob Dylan og gott betur því hann var betri en Bob Dylan. Þetta var Bubbi Morthens.“ Eins og sólskinið sjálft Tónlistarkonan Hera Hjartardóttir fór í tónleikaferðalag með Bubba 2002 þegar hann gaf út plötuna Sól að morgni og hún var að vinna í Don’t Play This. Þau ferðuðust um landið og spiluðu á 37 tónleikum á tveimur mánuðum. Hún minnist þess sérstaklega að hafa tekið myndir í grasinu með Bubba þar sem hann var í gulri úlpu. Hún segir öll lögin á þessari plötu hans senda sig aftur í þennan heim. „Ég held ég hafi verið 17 eða 18 ára með prjónana mína í fjólubláu pilsi, ein að túra með Bubba og Denna, sem þá var umboðsmaðurinn minn og hafði verið umboðsmaðurinn hans Bubba. Ég var einhvern veginn bara lítil stelpa og þeir stríddu mér endalaust og Bubbi sérstaklega, hann stríddi mér svakalega eins og stóri bróðir.“ Hann kenndi henni að spila með gítarnögl og hún segist alltaf muna þegar hann söng lagið hennar Chameleon girl hástöfum í bílnum. „Hann var alltaf eins og stóri bróðir. Þetta var ofboðslega skemmtilegur tími og Bubbi í gulu úlpunni sinni var bara sólskinið sjálft. Alltaf rosalega mikil gleði og orka í kringum hann. Ég er bara endalaust þakklát fyrir Bubbann í mínu lífi, hann hafði svo mikil áhrif á mig og mína tónlist og mitt uppeldi í raun og veru. Hann hefur opnað dyr fyrir mér og mörgum tónlistarmönnum.“ Ekkert skrítið að vilja elta goðið um landið frekar en að skrifa leiðara Silja Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur, rithöfundur, ritstjóri og þýðandi, tók Bubba upp á sína arma þegar hann var að stíga sín fyrstu skref og hafa þau fylgst að allar götur síðan. Hún sá hann á fundi í Reykjavík þann 6. janúar 1980 um málefni farandverkafólks í fortíð og nútíð þar sem hann söng lagið Stál og hnífur eins og engill. Hún var að vinna þætti fyrir Rás 1 með Tryggva Þór Aðalsteinssyni. Þau réðu hann á staðnum til að syngja í þættina og fengu góðfúslegt leyfi hans til að nota nafnið á laginu sem titil á þættina. Sumarið 1989 sagði Silja upp sem ritstjóri Þjóðviljans og ferðaðist með Bubba um Vestfirði þar sem hann hélt tónleika í þorpum og bæjum og seldi aðgöngumiða. „Allir tónleikarnir voru fjölsóttir og mér fannst yndislegt að sjá allt þetta fólk sem hafði elskað Bubba árum saman og hlakkaði til að fá hann í sína sumarheimsókn.“ Fólkinu fyrir vestan þótti ekkert undarlegt að hún skyldi frekar „vilja þvælast um með goðinu um misjafna vegi landsins en að skrifa leiðara.“ „Því fannst ég heldur hafa hækkað í tign að vera nú orðin miðasölukona hjá sjálfum Bubba Morthens.“ Til að stytta sér stundir á daginn kenndi Bubbi henni á þotuskíði í sjónum við Ísafjörð og að skjóta dósir. „Þetta ferðalag var eftirminnilegt á marga lund, ekki síst vegna þess að þá varð til textinn við Blóðbönd og lagið við hann sem síðan hefur alltaf verið eitt af mínum ótal uppáhalds Bubba-lögum.“ Trommuleikarinn Magnús Stefánsson gerði garðinn frægan með EGÓ, Utangarðsmönnum og Stjórninni en hann og Bubbi eiga sína sögu að baki. Þeim hefur ekki alltaf samið vel en Magnús segir að það sé honum bæði ljúft og skylt, þrátt fyrir allt sem gengið hefur á í þeirra samskiptum, að senda honum afmæliskveðju. „Það standa alveg góðir hlutir upp úr.“ Á síðari árum hefur honum fundist betra að einblína á hið jákvæða og fallega heldur en hitt. „Það er náttúrulega þannig með Bubba, hann hefur mjög fallegan karakter að geyma sem sýnir sig best, finnst mér, í hans tónlist, textagerð og túlkun.“ Honum þykir lagið Serbinn frábærlega vel gert og til fyrirmyndar sem og lagið Trúir þú á engla. „Þar finnst mér Bubbi koma inn á hlutina sem fá okkur til að hugsa aðeins dýpra um lífið og tilveruna.“ Sýndi honum að það var ekkert að óttast Einn af helstu samstarfsmönnum Bubba áratugum saman er bassaleikarinn Jakob Smári Magnússon sem spilað hefur með Tappa tíkarrassi og Das Kapital. Hann segir Bubba vera stóran og mikinn persónuleika sem fylli rýmið þegar hann kemur fram opinberlega. „Hann er fyrirferðamikill í íslensku samfélagi en eins og allt fólk þá á Bubbi sér fleiri en eina hlið, vissulega,“ segir Jakob sem hefur fengið að kynnast persónulegri hlið Bubba. „Það er dálítið ólíkur Bubbi en þessi opinberi Bubbi. Hann er miklu rólegri og yfirvegaðri. Það er þægilegt að vera í kringum hann. Hann er skilningsríkur og góður maður.“ Hann minnist þess þegar Bubbi bauð honum í veiði í Vatnsdalsá 2001. Einn daginn komu þeir að veiðisvæðinu þar sem áin var svolítið straumhörð og breið. „Mér líst ekkert á blikuna. Ég kann ekki að synda og ég segi við Bubba að ég sé ekki að fara að vaða þarna út í, hann taki þetta bara.“ Bubbi var þá kominn í ána og sagði að það kæmi ekki til greina að Jakob færi ekki ofan í: „Þú verður að geta vaðið ef þú ætlar að veiða.“ „Hann kemur í land og tekur í höndina á mér eins og hann sé pabbi minn og leiðir mig út í ána eins og lítinn strák. Ég fann það strax, það var svo mikið öryggi að halda í höndina á honum.“ Þegar þeir voru komnir út í hvarf óttinn. „Hann bara sýndi mér að þetta væri ekkert mál. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt og hugsa oft til baka um þetta móment. Talandi um þennan persónulega Bubba, einlæga og góða mann.“ Hann heldur mikið upp á lagið Haustið á liti þar sem Bubbi sýnir á sér einlægari hliðar. Hnefarnir styttu dvölina á Höfn í Hornafirði Listakonan Inga Sólveig Friðjónsdóttir var gift Bubba þegar hann samdi eina af sínum frægari plötum, Kona, þar sem finna má lög eins og Rómeó og Júlíu og Talað við gluggann. „Við Bubbi hittumst fyrst á vertíð á Höfn í Hornafirði. Ég var 17 ára gömul, það var á síðustu öld, 1974.“ „Við urðum ægilega skotin í hvert öðru. Tolli bróðir hafði komið Bubbanum í vinnu á Höfn en Bubbi var kominn í einhver vandræði í bænum, var fljótur upp með hnefana þegar hann drakk brennivín,“ rifjar hún upp. „Hann var kominn á skilorð en það voru einmitt hnefarnir sem urðu til þess að dvölin á Höfn varð hálfendaslepp. Við vorum á balli í Sindrabæ þegar einn heimamaður var helst til vinalegur við mig. Bubbi var snöggur að afgreiða hann.“ „Þetta varð til þess að faðir minn, sem þá var sýslumaður á svæðinu, vísaði drengnum úr bænum. Honum leist ekkert á okkar ástarævintýri. Bubbi var fluttur í lögreglufylgd upp á flugvöll og sendur aftur til borgar óttans. Við hittumst ekki aftur fyrr en fjórum árum síðar.“ Þá mættust augu þeirra í biðröð fyrir utan Óðal og var þá ekki aftur snúið. „Þá hófst annar kafli í okkar lífi.“ „Fyrst þegar ég heyrði lagið Blindsker þá fór ég nú að hágráta því þá stóðum við Bubbi enn og aftur á tímamótum í okkar lífi. Við vorum við það að fara að skilja, dásamlegt lag.“ Hefur hreyft við hjörtum þjóðarinnar Halla Tómasdóttir forseti Íslands sendi Bubba líka afmæliskveðju og sagði daginn fallegan. „Þegar ég hugsa um tónlistina þína þá leitar hugurinn og hjartað austur á firði þar sem ég vann í fiski á unglingsárunum.“ „Lögin þín héldu dampi í okkur á löngum vöktum og gáfu rödd þeirri reynslu og því fólki sem byggði líf sitt á hafinu. Þar stendur Ísbjarnarblús upp úr en líka sú tilfinning að lögin þín og sögurnar sem þau sögðu voru sönn og ekta. Þau voru um okkur.“ Hún segir lagið Hiroshima einnig hafa haft mikil áhrif á sig þar sem ekki aðeins tónlistarmaðurinn tali heldur manneskja sem þori að taka afstöðu og minna á afleiðingar stríðs og kalla eftir friði. „Það er boðskapur sem hefur fylgt mér alla tíð og skiptir því miður enn máli, kannski meira nú en nokkru sinni fyrr.“ Hennar uppáhaldslög eru Fjöllin hafa vakað og Móðir. „Þau sýna að maðurinn sem söng af krafti og ráðleika gat líka snert við dýpstu tilfinningum okkar af einstakri næmni.“ Það sem gerir tónlist Bubba svo sérstaka að mati Höllu er að hún hefur fylgt þjóðinni í gegnum vinnuna, veislurnar, baráttuna og kyrrðina. „Hún hefur verið hluti af lífi þjóðarinnar og hreyft við hjörtum okkar. Fyrir það er ég þakklát og örugglega þjóðin öll.“ Stórsöngvarinn Bubbi Morthens fagnaði 70 ára afmæli um helgina. Þjóðþekktir einstaklingar sendu honum fallegar kveðjur og rifjuðu upp skemmtilegar sögur. Fleiri sögur og kveðjur til Bubba má finna í Rokklandsþættinum í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article