Innlent | mbl | 8.6.2026 | 20:18 Forsendur brostnar en breytingar ekki lagðar til Sigurjón Þórðarson er formaður fjárlaganefndar en nefndin leggur ekki til breytingar á fjármálaáætlun. mbl.is/Karítas/Eggert Jóhannesson Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Í nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar eru ekki lagðar til breytingar á fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031. Er það þrátt fyrir að í álitinu komi fram að forsendur áætlunarinnar séu í raun brostnar. Gert var ráð fyrir því í fjármálaáætlun að fjárlög fyrir árið 2027 yrðu hallalaus, og að afgangur yrði um einn milljarður. Í áliti minnihlutans kemur hins vegar fram að ýmis útgjöld verði meiri en gert var ráð fyrir. Meðal annars spáir Seðlabankinn því að atvinnuleysi verði 0,7% meira en forsendur áætlunarinnar gerði ráð fyrir og kemur fram í álitinu að hvert prósentustig geti vegið á milli 9 og 10 milljörðum króna í útgjöldum ríkisins. Þá urðu breytingar á frumvarpi um styttingu bótatímabils atvinnuleysistrygginga til þess að gjöldin lækka minn en gert var ráð fyrir, þar munar um 1,2 milljarða á næsta ári. Frétt af mbl.is Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Ríkisstjórnin sé búin að gefast upp Þrátt fyrir að meirihlutinn viðurkenni ýmsar forsendubreytingar þá eru ekki lagðar til breytingar á fjármálaáætluninni. „Þetta er eins og fjölskylda sem er að fara í frí og er búin að kaupa ferð fyrir 500 þúsund sem kostar svo allt í einu milljón og foreldrarnir segja bara ok og láta eins og þetta hafi ekki gerst. Það þarf að uppreikna fjármálaáætlunina, til þess er hún,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd. Af hverju heldur þú að meirihlutinn leggi ekki til neinar breytingar þrátt fyrir að forsendur hafi breyst? „Þessi ríkisstjórn er bara lifandi dauð, hún er búin að gefast upp. Þessi fjármálaáætlun var aldrei að fara gera neitt í baráttunni við vexti og verðbólga, þetta var vont en er búið að versna alveg gríðarlega. Það er eins og þessi ríkisstjórn sé í einhverjum sýndarveruleika. Hún er búin að gefast upp og treystir sér ekki til þess að taka á því verkefni sem henni var falið,“ svarar Guðlaugur. Frétt af mbl.is Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Hallalaus fjárlög útilokuð Telur Guðlaugur að með þessu nefndaráliti sé það staðfest að fjárlög verði ekki hallalaus á næsta ári. „Það er algjörlega ljóst, miðað við þessar forsendur er það fullkomlega útilokað árið 2027. Við höfum ekki skoðað árin 2028 og 2029 en það var ekki gert ráð fyrir miklum afgangi þar. Forsendurnar voru bjartsýnar, eins og bent var á, en þær eru brostnar. Menn láta bara eins og ekkert sé, það væri allt í lagi ef menn væru ekki að stýra landinu.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mjög óvænt rekinn frá Arsenal Segist aldrei hafa komið til greina sem Bond Loka svæðinu umhverfis Madison Square Garden Patagonia í mál við Pattie Gonia Sómalski dómarinn fær ekki að dæma á HM Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Árásir Ísraela og Írana héldu áfram í nótt Icelandair gerir samstarfssamninga við tvö ný flugfélög Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Nýjast á mbl.is » Mjög óvænt rekinn frá Arsenal Segist aldrei hafa komið til greina sem Bond Loka svæðinu umhverfis Madison Square Garden Patagonia í mál við Pattie Gonia Sómalski dómarinn fær ekki að dæma á HM Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafnar því að ESB-aðild hafi áhrif á varnarsamning „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Lausnin flóknari en gjaldmiðlaskipti Árásir Ísraela og Írana héldu áfram í nótt Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði