Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Rolls-Royce í skammakróknum hjá United

Read Full Article →

Forstjóri United Airlines hefur gagnrýnt Rolls-Royce harðlega og sagt að breski hreyflaframleiðandinn sé í skammakróknum hjá flugfélaginu vegna ágreinings er varðar pöntun á Airbus-vélum. Á flugráðstefnu í Rio de Janeiro um helgina hrósaði Scott Kirby, forstjóri United, öðrum framleiðendum flugvélahreyfla fyrir störf þeirra á þessum krefjandi tíma í fluggeiranum en tók Rolls-Royce út fyrir sviga. „GE [Aerospace] vinna hörðum höndum… ég myndi setja þá efst á listann. Ég kann að meta þeirra störf,” sagði Kirby. Hann sagði jafnframt að Pratt & Whitney - sem hefur glímt við gæðavandamál vegna hreyfla sinna, sem hefur leitt til þess að sum flugfélög hafa þurft að kyrrsetja vélar á undanförnum mánuðum – væri „einlægt og heiðarlegt“ þegar kemur að því að vilja leysa þau vandamál sem það stendur frammi fyrir. „Eina fyrirtækið sem ég myndi segja að sé í skammarkróknum (e. “in the doghouse”) hjá mér er Rolls-Royce,“ sagði Kirby. Scott Kirby, forstjóri United Airlines. © EPA (EPA) Í umfjöllun Financial Times segir að opinber gagnrýni Kirby sé óhefðbundin fyrir fluggeirann þar sem ágreiningur sé gjarnan leystur á bak við tjöldin. United hefur átt í deilum við Rolls-Royce vegna sögulegrar pöntunar á 45 Airbus A350-1000 vélum. Rolls Royce er eina félagið sem framleiðir hreyfla fyrir umræddar breiðþotur. Í febrúar sl. tilkynnti United um að það hefði ákveðið að taka A350 vélarnar út úr flotaáætlun sinni og að flugfélagið ætti í lagadeilu við breska framleiðandann vegna meintra vanefnda á samningnum frá árinu 2010. Rolls-Royce heldur því fram að hafa staðið við skuldbindingar samninga félagsins um A350 vélarnar við United sem nái aftur til ársins 2010. Airbus A350-1000 vél sem tilheyrir Virgin Airlines. © epa (epa)

Share this article