United Airlines leitaði á síðasta ári til Delta Air Lines um mögulegan samruna sem hefði sameinað tvö verðmætustu flugfélög Bandaríkjanna, samkvæmt heimildarmönnum The Wall Street Journal sem þekkja til málsins. Scott Kirby, forstjóri United, hringdi meðal annars í Ed Bastian, forstjóra Delta, til að kynna hugmyndina. Stjórnendur Delta ræddu erindið og mat á hugsanlegum samruna í frumathugun, en viðræðurnar komust ekki lengra og bæði félög lögðu málið síðar til hliðar. Erindinu hefur ekki áður verið greint frá og sýnir það að Kirby er reiðubúinn til stórra aðgerða í þeirri viðleitni að gera United að enn öflugra alþjóðlegu flugfélagi. Síðar reyndi hann einnig að opna á samrunaviðræður við American Airlines en þeim var hafnað. Sjá einnig United hættir að eltast við American United og Delta eru í hópi fjögurra stórra flugfélaga sem hafa orðið ráðandi á bandaríska markaðnum eftir samrunabylgju síðustu tvo áratugi. Í greininni hefur lengi verið talið að samruni slíkra risa væri nánast útilokaður vegna samkeppnissjónarmiða. Samt sem áður vonuðust margir stjórnendur til þess að stærri samningar, sem áður þóttu óhugsandi, gætu orðið mögulegir á öðru kjörtímabili Donalds Trump. Samruni United og Delta hefði haft víðtæk áhrif á samkeppni og neytendur og líklega sætt náinni skoðun samkeppnisyfirvalda og ríkissaksóknara. Í fyrra skiluðu United og Delta samanlagt yfir 90% af hagnaði greinarinnar. Fyrr á árinu urðu hörð viðbrögð þegar greint var frá því að Kirby hefði nefnt mögulegan samruna United og American á fundi með Trump. Þingmenn vöruðu við áhrifum á farþega, Trump sagðist ekki hrifinn og Robert Isom, forstjóri American, kallaði hugmyndina samkeppnishamlandi. Kirby hefur sagt lítinn áhuga á minni samrunum. Í apríl sagði hann að hefðbundnir samrunar flugfélaga hefðu oft snúist um að sameina veikburða félög til að skera niður kostnað, flug og starfsfólk. „Mínar væntingar gætu ekki verið ólíkari,“ sagði hann um hugmyndina við American. Í maí sagði hann að án viljugs samstarfsaðila sæi hann ekki fyrir sér að United tæki þátt í samþjöppun á markaðnum á næstunni.