Innlent | Morgunblaðið | 9.6.2026 | 11:00 „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Bubbi og Arndís flytja lagið Fallegur dagur í Laugardalshöllinni og var góður rómur gerður að enda hafa þau bæði góðan róm. Ljósmynd/Rósa Sigrún Jónsdóttir Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég hef verið syngjandi síðan ég man eftir mér, ég var í söngnámi meðfram grunnskóla og hef alltaf verið mikill tónlistarunnandi,“ segir Arndís Inga Árnadóttir frá Nesi í Aðaldal í samtali við Morgunblaðið en í gleðinni af tónlist í hjarta hennar er gott rými fyrir Bubba Morthens, ástmög þjóðarinnar. Arndís er Bubbamanneskja fram í alla góma enda hefur hún þekkt tónlistarmanninn persónulega frá blautu barnsbeini þar sem þau fjölskylda hennar eru vakin og sofin yfir rekstri sínum á laxveiðisvæðinu við þá drottningu íslenskra laxveiðiáa sem Laxá í Aðaldal hefur verið kölluð. Bubba er því vel kunnugt um Arndísi og hefur hlýtt á rödd hennar en engu að síður kom það nokkuð flatt upp á hana þegar tónlistarmaðurinn tjáði henni að hann vildi fá hana í flutning lagsins Fallegur dagur á sviðinu um helgina, á tónleikum sem ekki þarf að tíunda frekar, þungavigtarefni íslenskra fjölmiðla síðan fyrir helgi, þegar Bubbi var enn bara 69 ára. Frétt af mbl.is Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Arndís hefur verið syngjandi síðan hún man eftir sér, keppt í söngvakeppnum skóla og lært við Tónlistarskólann á Akureyri. Framtíðin er að mestu óráðin, hún var of sein að sækja um í LHÍ fyrir haustið en er alltént á leið suður í háskólanám. Ljósmynd/Alexandra Ósk Hermóðsdóttir Bubbi helsti pepp-maðurinn „Ég fór að koma meira fram við söng eftir að ég byrjaði í framhaldsskóla og við Bubbi töluðum alltaf mikið um söng í veiðihúsinu og hann bauð mér að koma fram með honum á tónleikum í Neskirkju sumarið 2024, við búum við hliðina á kirkjunni. Þá tókum við Það er gott að elska sem gekk vel. Bubbi hefur alltaf verið minn helsti pepp-maður og alltaf verið að hvetja mig til að koma mér á framfæri sem ég er ótrúlega þakklát fyrir,“ segir söngkonan frá. Bubbi bauð Arndísi á ný til kirkju í fyrrasumar og fyrrnefnda lagið hér að ofan var þá á efnisskránni. „Hann sagðist þá hafa séð miklar breytingar hjá mér og sagði að þarna hefði verið komið eitt besta „coverið“ af þessu lagi sem hann hefði heyrt. Í framhaldinu sagði hann mér að hann væri að fara að halda þessa stórtónleika og væri að hugsa um að taka mig upp á svið með sér,“ segir Arndís. Hún kveðst þó ekki hafa verið viss um að af yrði en á Þorláksmessu kastaði tólfunum. „Við förum alltaf á Þorláksmessutónleikana hjá honum á Akureyri og fáum að fara baksviðs eftir tónleika og þá sagði hann við mig að þetta væri staðfest, ég yrði með honum í Laugardalshöllinni í sumar,“ segir Arndís sem vissi varla hvaðan á hana stóð veðrið við þessi tíðindi. Hún mætti á æfingu í Háskólabíói og kom svo aftur suður á mánudaginn í síðustu viku og dvaldi vikuna við æfingar með Bubba og hljómsveit hans. „Ég hef náttúrulega alltaf búið í Aðaldalnum í litlu umhverfi og langar í aðeins stærri vettvang svo ég er að hugsa um að flytja suður með vinkonu minni í haust,“ segir Arndís sem á myndinni sést á nokkuð stórum vettvangi. Ljósmynd/Brynhildur Ruth Sigurðardóttir Magnað tækifæri „Allir voru frábærir við mig og tilbúnir að gera allt fyrir mig. Ég var ótrúlega heppin með þessa reynslu og að fá að syngja með þessari hljómsveit, það er magnað tækifæri. Þetta gekk allt ótrúlega vel og þetta er bara það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir söngkonan úr Aðaldal frá og bætir því við að fagnaðarlætin sem dundu á henni þegar hún steig upp á svið til Bubba hafi verið mögnuð og stressið, sem hún var búin að bíða lengi eftir, kom aldrei. „Mér hefur bara aldrei liðið betur,“ segir Arndís af fallegum dögum í Laugardalnum um helgina. Blaðamaður forvitnast frekar um líf og stefnu söngkonunnar sem lauk stúdentsprófi frá Framhaldsskólanum á Laugum í Reykjadal í fyrra. Hún hélt áfram í tónlistinni eftir að hún lauk grunnskóla á sínum tíma, „ég var nú ekkert búin að gera mikið meðan ég var í grunnskólanum, keppti í nokkrum söngvakeppnum og var að koma fram eins og ég gat, aðallega fyrir fjölskyldu og vini“, rifjar hún upp. Arndís hóf nám við Tónlistarskólann á Akureyri að grunnskólanámi sínu loknu og hefur nú nýlokið þaðan framhaldsnámi í rytmískum söng. „Ég hef nú ekki gert neitt mikið meira en það, ég tók alltaf þátt í [söngkeppninni] Tónkvíslinni sem er haldin á Laugum og tók líka einu sinni þátt í Söngvakeppni framhaldsskólanna,“ heldur Arndís áfram. Frétt af mbl.is Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Tvær drottningar. Arndís situr fyrir með einum roðklæddum á uppáhaldsveiðistaðnum sínum í drottningu íslenskra laxveiðiáa, Laxá í Aðaldal. Sá sem mundar myndavélina er karl faðir hennar, Árni Pétur Hilmarsson, staðarhaldari laxveiðisvæðisins vinsæla. Ljósmynd/Aðsend Útilokar ekki flótta í sveitina Fram undan er háskólanám eins og gjarnan hjá nýstúdentum. „Ég ákvað að prófa að sækja um í Háskóla Íslands, mig langar svolítið að skipta um umhverfi, ég hef náttúrulega alltaf búið í Aðaldalnum í litlu umhverfi og langar í aðeins stærri vettvang svo ég er að hugsa um að flytja suður með vinkonu minni í haust og prófa að byrja á einhverju og sjá hvert það tekur mig en ég er líka mjög heimakær og getur vel verið að ég flýi aftur í sveitina,“ segir Arndís og hljóta þessi orð hennar beinlínis að kalla fram þekkta ljóðlínu tónlistarmannsins sem svífur yfir vötnum í þessu viðtali: „...flestir þeir ungu komnir suður þar sem af draumunum er nóg“, þótt íslenskt samfélag sé vissulega breytt síðan sögusvið lagsins Aldrei fór ég suður af Dögun frá 1987 fyllti eyru og vitund Íslendinga. Nú eru draumarnir fleiri og dreifast víðar um landið. Arndís sótti um félagsfræðinám við HÍ en einnig sálfræði í Háskólanum í Reykjavík og slær þann varnagla að það sé aðallega til að byrja á einhverju. „Mig langar líka að elta tónlistardrauminn,“ segir hún, „ég var að skoða nám í LHÍ [Listaháskóla Íslands] en var of sein að sækja um svo ég ætla að sjá hvert suðurdvölin þróast.“ Frétt af mbl.is Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Frænkur á frumsýningu heimildarmyndarinnar Strengs árið 2024, frá vinstri: Alexandra Ósk Hermóðsdóttir, Arndís, Áslaug Anna Árnadóttir og Andrea Ósk Hermóðsdóttir. Þess má geta að Alexandra tók myndina af frænku sinni hér að ofan þar sem Arndís sést ein á sviði Laugardalshallarinnar um helgina. Ljósmynd/Aðsend Vill koma meira fram Arndís segist vera vongóð um að vera komin með góðar tengingar inn í heim íslenskrar tónlistar, ekki síst eftir þann heiður sem Bubbi Morthens sýndi henni um helgina. „Ég er mjög spennt að geta vonandi nýtt það eins og ég mögulega get, reyna að fara að koma fram meira og semja tónlist og eitthvað,“ segir Arndís Inga Árnadóttir frá Nesi í Aðaldal að lokum eftir að hafa gert stormandi lukku í Laugardalshöllinni með Bubba Morthens um helgina. Kannski er það einmitt það sem felst í lokaorðum hennar, „og eitthvað“, sem verður mest spennandi að fylgjast með hjá þessari ungu söngkonu úr Aðaldalnum er fram líða stundir. Frétt af mbl.is Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » 41 látinn og yfir 450 slasaðir Tvö íþróttafélög fá hæstu styrkina Messi með gegn Íslandi Hætt saman eftir þriggja ára samband Bresk skólastúlka handtekin eftir stunguárás Umræðan Vígi frjálslynds lýðræðis Ræsum vélarnar – en hvar eru peningarnir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Fái ekki að skipta um nafn Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Segir viðræður um friðarsamning á lokametrunum Mest lesið Í gær Í vikunni ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Laun og hlunnindi hækkuðu um 7,4% Dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Varhugaverð innleiðing í skólunum Vill sjá samninginn sem nefndur var í Silfrinu Þurfa reglulega að kalla til aðstoð „Versta mögulega sviðsmynd“ Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Þurfa reglulega að kalla til aðstoð 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Nýjast á mbl.is » 41 látinn og yfir 450 slasaðir Tvö íþróttafélög fá hæstu styrkina Messi með gegn Íslandi Hætt saman eftir þriggja ára samband Bresk skólastúlka handtekin eftir stunguárás Umræðan Vígi frjálslynds lýðræðis Ræsum vélarnar – en hvar eru peningarnir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nokkur stór mál eftir í þinginu Varhugaverð innleiðing í skólunum Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Ekkert vesen“ að manna í viku Mest lesið Í gær Í vikunni ESB-aðild hefði