Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Beint: Enn hærri skattar, fyrir hvern?

Read Full Article →

Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) standa fyrir fundi um boðaða skattahækkun á fjármálafyrirtæki, sem hefst kl. 13 í dag. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er meðal þeirra sem taka þátt í umræðum á fundinum, sem haldinn er í Veröld – húsi Vigdísar. Fundurinn ber yfirskriftina „Enn hærri skattar, fyrir hvern?“. Skattahækkun á fjármálafyrirtæki var boðuð í fjármálaáætlun fjármála- og efnahagsráðherra fyrir árin 2027 til 2031. Ekki hefur verið upplýst um eðli hennar eða umfang með tilheyrandi óvissu og ófyrirsjáanleika. Á fundinum mun Dr. Gunnar Haraldsson, stofnandi Intellecon, kynna niðurstöður skýrslu um rekstrar- og skattaumhverfi fjármálaþjónustu á Íslandi og velta upp mögulegum áhrifum af boðaðri skattahækkun. Auk þess munu Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Seðlabankans, halda erindi á fundinum. Aðrir þátttakendur á fundinum verða: Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Viðreisnar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landsbankanum Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, forstjóri Hornsteins og fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá Fundarstjóri verður Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF og þá munu Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri SFF, og Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF, stýra pallborðsumræðum.

Share this article