Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa fyrir fundi boðaða hækkun bankaskattsins. Yfirskrift fundarins er Hærri skattar, töpuð tækifæri? en hann fer fram í Smárabíó og hefst kl. 9:00. „Hvar stendur íslenskt fjármögnunarumhverfi og í hvaða átt stefnir það? Hvaða áhrif hafa skattar, regluverk og aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum? Hvar liggja framtíðartækifærin til að fjármagna íslenskt atvinnulíf í átt til bættra lífskjara? Hversu mikil áhrif hefur fyrirsjáanleiki í skattlagningu og reglusetningu á samkeppnishæfni Íslands?,“ segir í fundarboði SFF. Á fundinm verður einnig fjallað verður um skatta á íslenska banka í alþjóðlegum samanburði. Þátttakendur á fundinum verða: Arna Lára Jónsdóttir , þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Daði Már Kristófersson , fjármála- og efnahagsráðherra Ellert Arnarson , fjármálastjóri Amaroq Minerals Dr. Gunnar Haraldsson , hagfræðingur og stofnandi Intellecon Hildur Sverrisdóttir , þingmaður Sjálfstæðisflokksins Iða Brá Benediktsdóttir , aðstoðarbankastjóri Arion banka Ingvar Haraldsson , greininga- og samskiptastjóri SFF Íris Björk Hreinsdóttir , yfirlögfræðingur SFF Jón Guðni Ómarsson , bankastjóri Íslandsbanka Lars Christensen , hagfræðingur og framkvæmdastjóri Ipace Lev Ratnovski , hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum Reynir Stefán Gylfason , endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG Sigríður Andersen , þingflokksformaður Miðflokksins Tanya Zharov , lögfræðingur og stjórnarmaður í atvinnulífinu Fundarstjóri verður Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.