Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Greinir frá sér­kenni­legum sam­skiptum sínum við Skattinn

Read Full Article →

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, gagnrýnir Skattinn eftir samskipti sín við stofnunina í tengslum við beiðni um 35% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði. Björn birti í dag á X sam­skipti sín við em­bættið þar sem hann segir Skattinn hafa gefið sér sjö daga til að svara beiðni um frekari gögn, en tekið sér sjálft 19 daga til að bregðast við svari hans. „Ekki bein­línis hvatning til að gera hlutina uppi á borði,“ skrifar Björn. Málið snýst um reikning frá Parketþjónustunni ehf. vegna vinnu við íbúðar­húsnæði. Í bréfi Skattsins til Björns, dag­settu 18. maí, var óskað eftir nánari sundur­liðun frá út­gefanda reikningsins. Þar kom fram að á reikningi þyrfti að vera skýr sundur­liðun á vinnu, véla­vinnu og efnis­kostnaði, en fram­lagður reikningur bæri það ekki með sér. Skatturinn tók fram að ef um­beðin gögn bærust ekki innan sjö daga eða ef þau reyndust ófullnægjandi mætti búast við að beiðninni yrði hafnað. Björn svaraði 21. maí og sendi nánari sundur­liðun reikningsins. Í svari hans kom fram að vinnuliðir og efnisliðir væru að­skildir og að fram kæmi lýsing, magn, einingar­verð og heildar­verð fyrir hvern lið. Þann 9. júní svaraði Skatturinn og óskaði eftir „betri sundur­liðun“ frá Parketþjónustunni þar sem upp­lýsingarnar væru ekki viðunandi. Björn svaraði samdægurs og óskaði eftir nánari skýringum á því hvað teldist óviðunandi við sundur­liðunina. Hann sagði reikninginn, eftir því sem hann fengi best séð, upp­fylla þau skil­yrði sem gerð væru til reikninga vegna endur­greiðslu virðis­auka­skatts. Hann óskaði jafn­framt eftir því að Skatturinn til­greindi nákvæm­lega hvaða upp­lýsingar vantaði, á hvaða laga­grund­velli eða stjórn­valds­fyrir­mælum krafan byggðist og hvaða viðbótargögn eða breytingar þyrfti til að reikningurinn teldist fullnægjandi. Björn vísaði í leiðbeiningar­skyldu stjórn­valda og sagði al­menna beiðni um „betri sundur­liðun“ án frekari skýringa ekki veita raun­hæfa leiðsögn um hvaða ann­markar væru taldir á gögnunum. Í færslu sinni segir Björn málið varpa ljósi á verk­lag sem geti fælt fólk frá því að sækja rétt sinn til endur­greiðslu. Skatturinn hefur, eftir því sem fram kemur í birtum sam­skiptum, ekki svarað síðasta erindi Björns. Samskipti við Skattinn um 35% endurgreiðslu VSK. Fæ 7 daga til að svara. Embættið gefur sér síðan 19 daga til að senda mér eina línu um að gögnin séu ekki „viðundandi“. Ekki beinlínis hvatning til að gera hlutina uppi á borði. pic.twitter.com/IdeHezeIyM — Björn Brynjúlfur (@bjornbr) June 9, 2026

Share this article