Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Telur að skatturinn muni bitna á þeim efnaminni

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.2.2026 | 20:00 Telur að skatturinn muni bitna á þeim efnaminni Benedikt Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, er ekki hrifinn af því að leggja á óhollustuskatt. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/Ómar Líkur eru á því að svokallaður óhollustuskattur muni koma til að bitna hvað mest á þeim sem hafa minnst á milli handanna. Þetta er mat Benedikts Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Alma Möller heilbrigðisráðherra vill að skipaður verði starfshópur sem skoðar fýsileika þess að hækka álögur á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur en þetta kemur fram í tillögu að þingsályktun sem nú er í samráðsgátt þar sem finna má drög að aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026-2030. Frétt af mbl.is Sykurskatti velt upp Fylgir mikil vinna og kostnaður Benedikt segir samtökin vera á móti því að lagður verði á slíkur skattur en þegar sykurskattur var lagður á í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur voru samtökin því mjög andvíg. „Miðað við okkar reynslu þegar fengist var við þetta síðast þá er óheyrileg flækja sem fylgir þessu. Þetta kallar á mikla vinnu af hálfu innflytjenda og söluaðila og það kostar mikið fyrir ríkið að fást við innheimtuna. Það er kostnaður og vinna á báðum endum við að fást við þetta.“ Hefur Benedikt eins og áður segir áhyggjur af því að skatturinn muni snerta efnaminni aðila hvað mest. „Ef þessi skattur á að hafa virkni þarf hann væntanlega að vera nægilega hár, það hefur verið nefnt 20%. Það er augljóst að slíkur skattur vegur þyngra í matarkaupum tekjulægri heimila en tekjuhærri. Það er eitthvað sem menn hafa áhyggjur af hjá mér.“ Frétt af mbl.is Offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar Hefur efasemdir um virkni skattsins Skatturinn er til þess gerður að draga úr neyslu á matvörum sem taldar eru óhollar en Benedikt hefur efasemdir um að skatturinn muni leiða til þess. „Það kann að vera að þetta hafi áhrif á neyslu í upphafi en ef við lítum á skattlagningu á öðrum sviðum sem snertir daglegar neysluvörur þá sjáum við að þetta hættir að virka sem forvörn og neytendur bara venjast þessu og taka á sig kostnaðinn án þess að þetta hafi áhrif á neyslu. Þetta hefur þá breyst úr skatti sem hefur áhrif á neysluhegðun yfir í hreinan fjáröflunarskatt.“ Gagnrýnir Benedikt jafnframt að skatturinn komi til greina nú þegar hagkerfið er á þeim stað sem það er. „Hér hefur verið gagnrýni á verðbólgu þegar kemur að matvælum. Hér er enn verið að gefa í og skapa forsendur til hækkunar á verðbólgu. Þetta er flókið, dýrt og óljóst hver áhrifin verða en auk þess er þetta verulega óheppileg tímasetning.“ Frétt af mbl.is Sykurskattur „ein versta skattheimtan“ Kæmi á óvart Kæmi það Benedikt mjög á óvart ef ríkisstjórnin myndi grípa til þess ráðs að leggja skattinn á. „Það myndi koma mér á óvart. Bæði útaf tímasetningunni og flækjustiginu þá kæmi mér á óvart ef þetta væri lokaniðurstaðan. Síðast þegar þetta var gert var þetta gert á meðan ríkið var í nauðvörn. Þetta var beint eftir hrunið og það var gripið til ýmissa ráða til að auka tekjur ríkissjóðs á þeim tíma.“ Myndir: Öskudagurinn í Smáralind Wolves - Arsenal, staðan er 0:1 Telur að skatturinn muni bitna á þeim efnaminni „Ég hef aldrei séð annað eins“ Landsliðskonan fór á kostum í Svíþjóð Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði Nýskipan Atlantshafssamskipta Fleira áhugavert Vínverslun Hagkaups vel tekið Íslendingarnir snúa heim í dag Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Myndir: Öskudagurinn í Smáralind Wolves - Arsenal, staðan er 0:1 Telur að skatturinn muni bitna á þeim efnaminni „Ég hef aldrei séð annað eins“ Landsliðskonan fór á kostum í Svíþjóð Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði Nýskipan Atlantshafssamskipta Fleira áhugavert Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Innilokuð raforka í Blönduvirkjun „Við finnum að símtölin eru þung“ Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article