Afturelding tekur á móti Stjörnunni í fyrsta leik 8-liða úrslita bikarkeppni karla í fótbolta. Fjögur lið úr næstefstu deild eru enn í keppninni og Afturelding er eitt þeirra. Afturelding er í öðru sæti Lengjudeildarinnar með 16 stig, jafnmörg og Þróttur sem er í fyrsta. Stjarnan leikur í deild þeirr bestu en hefur hins vegar ekki átt sérlega góðu gengi að fagna í upphafi tímabils. Liðið er í níunda sæti deildarinnar með tíu stig eftir níu umferðir. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og er sýndur í beinni á RÚV 2. Allir leikir umferðarinnar eru sýndir á rásum RÚV 12. júní 17:30 Ægir - Breiðablik (ruv.is og RÚV appið) 12. júní 20:15 ÍA - Víkingur (ruv.is og RÚV appið) 13. júní 14:00 Fylkir - Grótta (RÚV)