Innlent | Morgunblaðið | 10.6.2026 | 8:02 | Uppfært 9:40 Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Neytendur þurfa að fara æ varlegar með kortaupplýsingar sínar. mbl.is/Eggert Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Netsvik Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi » Fleiri tengdar fréttir Morgunblaðið birti í gær grein Bjarna Þórs Bjarnasonar prests þar sem hann lýsir reynslu sinni af kortasvikum. Greinin vakti töluverða athygli en svo virðist sem Bjarni muni þurfa að sitja uppi með tjónið af tveimur kortafærslum sem hann kannast ekki við, upp á um 424.000 kr. samanlagt. Blaðamaður leitaði nánari upplýsinga hjá Bjarna en hann var á ferðalagi á Spáni þegar færslurnar voru gerðar. Honum bárust tvær tilkynningar um að samþykkja færslurnar og hafnaði í bæði skiptin. Þá barst honum tilkynning um að Mastercard-kreditkorti hans hefði verið lokað eftir að fyrri færslan átti sér stað en engu að síður fór sú seinni í gegn. Kortið var gefið út af Íslandsbanka en þar fengust þau svör að vegna trúnaðar og persónuverndar geti bankinn ekki tjáð sig um einstök mál. Lilja Kristjánsdóttir, forstöðumaður viðskiptaeftirlits bankans, segir hins vegar að almennt beri viðskiptavinur ábyrgð á færslum sem staðfestar eru með sterkri sannvottun eða persónubundnum öryggisþáttum. „Í sumum tilvikum er þó unnt að reyna að endurheimta fjármuni og leitast bankinn ávallt við að gera það, en ekki er hægt að ábyrgjast árangur og hvert mál er metið sérstaklega. Þá er boðið upp á endurkröfuferli í samvinnu við Mastercard sem tryggir korthöfum rétt í ákveðnum tilvikum, og það á við hvort sem um er að ræða debet- eða kreditkort.“ Greinilegt er að umfang svona svika er umtalsvert og segir Lilja að bara hjá Íslandsbanka hafi heildarendurheimt fjármuna á síðasta ári vegna mála af þessum toga numið 258 milljónum króna og endurheimtuhlutfall kortafærslna verið 84%. „Undanfarin misseri hefur þróun í netsvikum verið afar hröð. Í auknum mæli beita þeir sannfærandi blekkingum til að fá fólk til að veita aðgang að viðkvæmum upplýsingum eða samþykkja aðgerðir með rafrænum skilríkjum. Við höfum meðal annars séð tilfelli þar sem slíkar upplýsingar eru nýttar til að setja upp aðgang að bankaappi og snertilausum greiðslum, svo sem Apple Pay og Google Pay. Þar með er svikahröppum veittur svo til ótakmarkaður aðgangur að greiðslukortum viðkomandi,“ segir Lilja. Gildrurnar verða æ skæðari Una Magnea Stefánsdóttir, lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum, segir erfitt að fullyrða um mál Bjarna Þórs enda hafi samtökin ekki annað að byggja á en lýsingu korthafans. „Það kann að vera að færslurnar hafi verið samþykktar af gáleysi, en ef neytandinn staðfestir ekki færsluna með sterkri sannvottun, s.s. með samþykki með rafrænum skilríkjum, er mjög einkennilegt að bankinn sé ekki búinn að sækja peninginn í gegnum endurkröfuferli.“ Þegar fólk leitar til Neytendasamtakanna með svikamál af þessu tagi, og búið að hefja ferli hjá bankanum, ráðleggja samtökin að haft sé samband við Auðkenni. „Þar er hægt að sjá svart á hvítu hvort viðkomandi veitti sterka sannvottun eða hvort hætt var við,“ segir Una og bætir við að allir viðskiptabankarnir hafi sett upp öryggiskerfi til að sporna við svikum. „Næsta skref, ef fólk er ekki ánægt með þá afgreiðslu sem svona mál fá hjá þeirra viðskiptabanka, er að vísa málinu áfram til úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki.“ Una minnir lesendur á að sýna aðgát og segir hún að æ erfiðara verði að koma auga á gildrurnar. „Gervigreindin er að hjálpa þessum óprúttnu aðilum við ódæði,“ segir hún. „Ekki þarf mikið til, ef maður er ögn utan við sig í amstri dagsins, að opna símann þegar skeyti berst og vera óvart búinn að heimila greiðslu eða aðgang að heimabankanum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Netsvik Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skorast ekki undan verkefninu Birkir Már fór á kostum þegar Afturelding skellti Stjörnunni Straumurinn hafi rofnað við raunveruleikann Ljóðaflokkur skrifaður úr tölvupóstum móður sinnar „Stór hluti vandans er heimatilbúinn“ Umræðan Þjóðin þarf meira en hálfa gjaldmiðlaskýrslu Evran og áhættan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stríðið torveldar þróunaraðstoð Missti auga í árásinni í Belfast „Ekkert sem bannar þetta“ Enn einn plásturinn á „opið blæðandi sár“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Spáir bongóblíðu í höfuðborginni á föstudaginn „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Safnað fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Malbikað yfir Íslandsmet ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Boðið í heimsókn eftir þuklið Hætta rannsókn vegna þriggja barna eftir misskilning Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Íslendings saknað á Taílandi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Nýjast á mbl.is » Skorast ekki undan verkefninu Birkir Már fór á kostum þegar Afturelding skellti Stjörnunni Straumurinn hafi rofnað við raunveruleikann Ljóðaflokkur skrifaður úr tölvupóstum móður sinnar „Stór hluti vandans er heimatilbúinn“ Umræðan Þjóðin þarf meira en hálfa gjaldmiðlaskýrslu Evran og áhættan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Missti auga í árásinni í Belfast Enn einn plásturinn á „opið blæðandi sár“ Virði fasteigna lækkar á milli ára Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Spáir bongóblíðu í höfuðborginni á föstudaginn „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Safnað fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Malbikað yfir Íslandsmet ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Boðið í heimsókn eftir þuklið Hætta rannsókn vegna þriggja barna eftir misskilning Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Íslendings saknað á Taílandi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum