Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Íslandsbanki brást mér

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.6.2026 | 10:00 Aðsend grein: Íslandsbanki brást mér Bjarni Þór Bjarnason Setja bókamerki Ég hef verið viðskiptavinur Íslandsbanka áratugum saman. Ég var fyrst viðskiptavinur Útvegsbanka Íslands, síðan Íslandsbanka frá 1990 þegar Útvegsbankinn og þrír aðrir bankar sameinuðust. Árið 2006 breyttist nafnið í Glitni banka, Nýi Glitnir kom árið 2008 og Íslandsbanki hf. hefur verið til frá árinu 2009. Í öll þessi ár hef ég verið trúfastur viðskiptavinur bankans sem hefur borið ýmis nöfn á þessu langa tímabili. Sömuleiðis hef ég verið með Master Card-kreditkort í meira en 40 ár. Það hefur alltaf gengið vel og hef ég verið ánægður með þá samleið. Ég hef alltaf staðið í skilum og tel mig hafa verið góðan viðskiptavin. Síðan gerðist það fyrir stuttu að Íslandsbanki hafði samband við mig að fyrra bragði til að tilkynna mér að gullkortið mitt frá Master Card hefði verið fryst. Ástæðan væri misnotkun þar sem dularfull kaup úti heimi hefðu átt sér stað upp á kr. 170 þúsund. Sama dag kom önnur færsla fram upp á kr. 254 þúsund. Samanlagt voru þetta kr. 424 þúsund. Ég óskaði eftir að kortinu yrði lokað þegar í stað til þess að stöðva þessa þjófa. Ég hitti síðan þjónusturáðgjafa í útibúi bankans á Suðurlandsbraut sem skrifaði bréf til endurkröfudeildar Íslandsbanka. Daginn eftir kom bréf til mín í tölvupósti frá endurkröfudeild bankans. Bréfið er undirritað af starfsmanni deildarinnar sem er sérfræðingur í endurkröfum (Specialist Chargeback) í Viðskiptaveri. Ég var orðlaus eftir að hafa lesið bréfið. Samkvæmt þessu bréfi segir þessi sérfræðingur bankans óbeint að ég hafi gefið leyfi fyrir þessum úttektum sem er alrangt. Glæpamennirnir eru orðnir svo færir í ósóma sínum að þeim tekst að blekkja endurkröfudeild Íslandsbanka. Niðurstaðan er eftirfarandi samkvæmt þessu bréfi: „Því miður er ekki endurkröfuréttur á færslurnar samkvæmt endurkröfureglum Master Card.“ Hér er það fórnalamb netsvika sem er látið borga brúsann. Engar tryggingar virðist bankinn hafa í svona tilfellum. Það er ótrúlegt en satt. Ég var ósáttur við þessar málalyktir. Í ljósi þess færði ég öll mín viðskipti yfir í annan banka. Það gerði ég með trega og óbragð í munni. En ég get ekki verið í viðskiptum við banka sem kemur svona fram við mig og bregst mér algjörlega, þrátt fyrir áratuga samleið. Höfundur er prestur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vill sjá samninginn sem nefndur var í Silfrinu Stoltur að vera Íslendingur Aðsend grein: Íslandsbanki brást mér „Þetta er ekki lengur sami þáttur og ég byrjaði í,“ Varhugaverð innleiðing í skólunum Umræðan Vígi frjálslynds lýðræðis Ræsum vélarnar – en hvar eru peningarnir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Segir viðræður um friðarsamning á lokametrunum Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ „Versta mögulega sviðsmynd“ Mest lesið Í gær Í vikunni ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot Laun og hlunnindi hækkuðu um 7,4% Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Þurfa reglulega að kalla til aðstoð „Versta mögulega sviðsmynd“ Hefur Ísland „sæti við borðið“ nú þegar? Viðra áhyggjur af Evrópuumræðu á RÚV Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Þurfa reglulega að kalla til aðstoð 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Nýjast á mbl.is » Vill sjá samninginn sem nefndur var í Silfrinu Stoltur að vera Íslendingur Aðsend grein: Íslandsbanki brást mér „Þetta er ekki lengur sami þáttur og ég byrjaði í,“ Varhugaverð innleiðing í skólunum Umræðan Vígi frjálslynds lýðræðis Ræsum vélarnar – en hvar eru peningarnir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Icelandair gerir samstarfssamninga við tvö ný flugfélög „Ekkert vesen“ að manna í viku Varhugaverð innleiðing í skólunum Mest lesið Í gær Í vikunni ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot Laun og hlunnindi hækkuðu um 7,4% Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Þurfa reglulega að kalla til aðstoð „Versta mögulega sviðsmynd“ Hefur Ísland „sæti við borðið“ nú þegar? Viðra áhyggjur af Evrópuumræðu á RÚV Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Þurfa reglulega að kalla til aðstoð 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn

Share this article