Innlent | Morgunblaðið | 10.6.2026 | 10:20 Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Átti engra annarra kosta völ Straumurinn hafi rofnað við raunveruleikann Evran ekki töfralausn Vegferðin í höndum þjóðarinnar „Stór hluti vandans er heimatilbúinn“ » Fleiri tengdar fréttir Upp er kominn ágreiningur á milli bílaleigufyrirtækja og Skattsins en Rósa Guðbjartsdóttir alþingismaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á málinu á Alþingi í gær. Hún telur að ný túlkun Skattsins á lögum um virðisaukaskatt geti leitt til fjöldagjaldþrota í greininni. „Samkvæmt mínum upplýsingum er komin upp allsérstök og mjög alvarleg deila forsvarsmanna bílaleigufyrirtækja við skattayfirvöld sem að óbreyttu gæti gengið frá bílaleigubransanum í heild sinni hér á landi,“ sagði Rósa í ræðu á Alþingi í gær. „Um er að ræða að bílaleigufyrirtæki hefur fengið tilkynningu um að því sé nú gert að greiða virðisaukaskatt af sölu valkvæðra trygginga samhliða útleigu bifreiða til ferðamanna eða annarra. Í leiðbeiningum til rekstraraðila árið 2017 var fullyrt að bílaleigu væri heimilt að selja þessar valkvæðu tryggingar án virðisaukaskatts. Og tveimur árum síðar var það áréttað enn frekar í lögum. En nú ber svo við að einstakur rekstraraðili hefur fengið endurákvörðun á virðisaukaskatti upp á rúmar 700 milljónir króna auk álags og dráttarvaxta fyrir árin 2024 og 2025. Það getur hver og einn ímyndað sér hvaða áhrif slíkur eftiráreikningur hefur á rekstur fyrirtækisins,“ sagði Rósa. Hún segir það augljóst að fyrirtækin geti ekki staðið undir þeim kröfum. Verði sömu nálgun beitt víðar sé raunhæf hætta á keðjuverkandi áhrifum, fjöldagjaldþrotum og atvinnuleysi starfsfólks í greininni og jafnvel hjá fleiri aðilum sem selji valkvæðar tryggingar, eins og hjá þeim sem selja raftæki. „Brýnt er að fjármálaráðuneytið taki málið til skoðunar án tafar, tryggi meðalhóf og stuðli að málefnalegri úrlausn áður en til alvarlegs ástands kemur hjá þeim fyrirtækjum sem um ræðir. Hér er verið að koma aftan að fyrirtækjunum í landinu,“ sagði hún. Rósa sagði eitt að auka skattbyrðina með ákvörðunum fyrir opnum tjöldum, en annað þegar byrðarnar væru auknar vegna nýrra túlkana á skattalöggjöf og skyndilega tilkynnt að greiða beri umtalsvert hærri gjöld en áður og það afturvirkt. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Alþingi Átti engra annarra kosta völ Straumurinn hafi rofnað við raunveruleikann Evran ekki töfralausn Vegferðin í höndum þjóðarinnar „Stór hluti vandans er heimatilbúinn“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Unnið að lausn vegna ólyktar Börnin vilja flytja í hundahöllina Barnaverndarstarfsmaður alvarlega sár eftir árás Vara gegn hættu á vaxtahækkunum og kalla á aðhald Heimskasta lið sögunnar Umræðan Tækifærin eru ekki síður hér Allt í plati Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íranar segja Hormússund lokað Fóru of geyst í innleiðingu laganna Virði fasteigna lækkar á milli ára Sambandið verra eftir lokun 3G Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Dæmið gengur ekki upp Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Tveir stungnir með hnífi Ótímabær og ranglega orðuð auglýsing Átti engra annarra kosta völ Sambandið verra eftir lokun 3G Einn vann 90 milljónir Fóru of geyst í innleiðingu laganna Endurtökum vonandi ekki sömu mistökin Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Einn vann 90 milljónir Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Nýjast á mbl.is » Unnið að lausn vegna ólyktar Börnin vilja flytja í hundahöllina Barnaverndarstarfsmaður alvarlega sár eftir árás Vara gegn hættu á vaxtahækkunum og kalla á aðhald Heimskasta lið sögunnar Umræðan Tækifærin eru ekki síður hér Allt í plati Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Virði fasteigna lækkar á milli ára Vara gegn hættu á vaxtahækkunum og kalla á aðhald Samkeppnishæfni meiri en innan ESB Íranar segja Hormússund lokað Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Dæmið gengur ekki upp Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Tveir stungnir með hnífi Ótímabær og ranglega orðuð auglýsing Átti engra annarra kosta völ Sambandið verra eftir lokun 3G Einn vann 90 milljónir Fóru of geyst í innleiðingu laganna Endurtökum vonandi ekki sömu mistökin Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Einn vann 90 milljónir Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“