Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Króatar hafna beiðni Ungverja og Slóvaka um olíuflutninga frá Rússlandi

  • What: Croatia has denied a request from Hungary and Slovakia to transport Russian oil through the Adria oil pipeline.
  • Impact: The decision blocks Russian oil from reaching Hungary and Slovakia via Croatia, due to concerns that oil trade with Russia finances attacks on civilians in Ukraine.
Read Full Article →

Stjórnvöld í Króatíu hafa neitað því að flytja rússneska olíu til Ungverjalands og Slóvakíu, þrátt fyrir beiðni þar um frá löndunum tveimur. Króatíski efnahagsráðherrann Ante Šušnjar tilkynnti um ákvörðun stjórnvalda í gær. Kyiv Independent greinir frá. Allur flutningur á rússneskri olíu um Druzhba-olíudreifikerfið í Evrópu hefur legið niðri síðan í janúar vegna stórfelldra árása Rússa á Úkraínu. Úkraínuher hefur sömuleiðis ráðist markvisst á olíuinnviði kerfisins í Rússlandi. Stjórnvöld í Ungverjalandi og Slóvakíu óskuðu eftir aðstoð yfirvalda í Króatíu til að tryggja rússneska olíu um Adría-olíudreifikerfið, sem liggur í gegnum Króatíu til Ungverjalands og áfram til Slóvakíu. Því var hafnað af yfirvöldum í Króatíu því olíuviðskipti við Rússa fjármagni árásir á almenna borgara í Úkraínu. Druzhba-olíudreifikerfið er eitt það stærsta sinnar tegundar í heiminum og getur flutt allt að tvær milljónir olíutunna á dag. Það er eitt mikilvægasta olíuflutningskerfi Rússlands til Evrópu, sér í lagi til Ungverjalands og Slóvakíu sem eru einu þjóðir Evrópusambandsins sem enn flytja inn hráolíu frá Rússum.

Share this article