Innlent | Morgunblaðið | 11.6.2026 | 6:00 Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Lítið þokast í vinnudeilu Icelandair og flugmanna félagsins. mbl.is/Árni Sæberg Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Ekki hefur verið boðað til samningafundar í kjaradeilu flugmanna Icelandair og fyrirtækisins. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari við Morgunblaðið. Samkvæmt upplýsingum blaðsins eru þó í gangi samtöl og þreifingar á milli samningsaðila, en þær hafa þó ekki leitt til þess að boðað hafi verið til formlegs fundar enn sem komið er. Deilan er sögð þung og erfið og óljóst hvort boðað verði til fundar nú í vikunni. Vinnudeilan snýst aðallega um kröfur Icelandair um breytt vinnufyrirkomulag flugmanna sem þó krefst ekki meira vinnuframlags frá flugmönnum. Fyrst og fremst er óskað breytinga á því hvernig unnt sé að skipuleggja vinnu flugmanna. Það er einkum til þess að Icelandair geti lagað sig að nýrri flugvélategund, en Icelandair er að skipta út Boeing-flugvélum en taka inn í reksturinn í þeirra stað nýjar Airbus 321 XLR-flugvélar sem eru langdrægari en Boeing-þotur félagsins og skapa þ.a.l. aukin tækifæri. Því er lögð áhersla á að gert verði mögulegt að skipuleggja vinnutíma flugmanna á annan veg en verið hefur. Ekki munu vera uppi kröfur um beinar launahækkanir enn sem komið er og ekki hefur tekist að fá upplýsingar um launakjör flugmanna hjá Icelandair. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru byrjunarlaun flugmanna hjá flugfélaginu nálægt því að vera 50% hærri en meðallaun á íslenskum vinnumarkaði, en þau voru 816 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári. Alls eru 25 launaskalar eða launaflokkar flugmanna hjá Icelandair og eru flugstjórar með lengsta starfsaldurinn í hæsta skala, en byrjunarlaun flugmanna eru í þeim lægsta. Flugmaður sem hefur störf hjá flugfélaginu fær í mánaðarlaun um 1,2 milljónir og er þá meðtalinn svokallaður flugauki sem er 11% af grunnlaunum og bætist ofan á þau, óháð vinnuframlagi. Dagpeningar sem flugmenn fá jafnframt greidda meðan á vaktinni stendur eru þó ekki inni í framangreindri tölu og heldur ekki bílastyrkur sem flugmenn njóta. Laun flugstjóra í efsta skala eru meira en tvöfalt hærri en byrjunarlaun flugmanna og eru nálægt 2,8 milljónum á mánuði og er þá flugauki innifalinn, en hvorki dagpeningar né bílastyrkur. Þá fá flugmenn greitt um 21% af launum í lífeyrissjóð, auk desemberuppbótar og orlofsuppbótar. Einnig má nefna að flugmenn Icelandair fá 15% af föstum launum fyrir hvern dag í útkalli. Þannig fá flugstjórar greiddar tæplega 400 þúsund fyrir daglangt útkall en flugmenn á byrjunarlaunum fá innan við 200.000 krónur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Örn Gunnlaugsson: Grunnlaun plús plús plús...... Nýjast á mbl.is » The Rock fékk stein í punginn Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Grindvíkingar boða til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið Langstærsta sumarið til þessa Elísabet Rut bætti eigið met Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Lausnin er ekki meiri skattar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hagræðingarhópur kynntur Endurtökum vonandi ekki sömu mistökin „Þetta er svona pínu íslenskt“ Verðbólga á sterum frá 2023 Mest lesið Í gær Í vikunni Hagræðingarhópur kynntur Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Réðst á dreng í sundi Verðmætin gætu hafa varðveist á hafsbotni Hitinn gæti náð 20 stigum Álverðið hefur rokið upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Verðbólga á sterum frá 2023 Óttast er að hundruð missi vinnuna Krónan í Lindum opnaði á nýjan leik Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Réðst á dreng í sundi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » The Rock fékk stein í punginn Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Grindvíkingar boða til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið Langstærsta sumarið til þessa Elísabet Rut bætti eigið met Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Lausnin er ekki meiri skattar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ Fóru of geyst í innleiðingu laganna Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Mest lesið Í gær Í vikunni Hagræðingarhópur kynntur Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Réðst á dreng í sundi Verðmætin gætu hafa varðveist á hafsbotni Hitinn gæti náð 20 stigum Álverðið hefur rokið upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Verðbólga á sterum frá 2023 Óttast er að hundruð missi vinnuna Krónan í Lindum opnaði á nýjan leik Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Réðst á dreng í sundi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna