Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Afkoma ríkisins versnar milli ára

Read Full Article →

Afkoma hins opinbera hefur versnað milli ára samkvæmt bráðabirgðamati Hagstofunnar á afkomunni á fyrsta ársfjórðungi. Hallinn hjá hinu opinbera nam 23,7 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi en í fyrra kom ríkið út á sléttu fyrstu þrjá mánuði ársins. Þegar upp var staðið varð 120,1 milljarða halli hjá hinu opinbera á síðasta ári. Hagstofan áætlar að tekjur hins opinbera hafi aukist um 3,8 prósent milli ára, meðal annars vegna aukinna skatttekna og hærri arðgreiðslna frá fyrirtækjum í eigu ríkisins.

Share this article