Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aukinn halli hjá hinu opinbera

Read Full Article →

Afkoma hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi 2026 er áætluð neikvæð um 23,7 milljarða króna, sem jafngildir 1,8% af vergri landsframleiðslu (VLF) tímabilsins, samkvæmt bráðabirgðamati Hagstofunnar. „Til samanburðar er áætlað að afkoma hins opinbera hafi verið nálægt jafnvægi á fyrsta ársfjórðungi 2025, þótt heildarafkoma ársins sé metin neikvæð um 120,1 milljarð króna,“ segir í frétt á vef Hagstofunnar. Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 3,8% frá fyrsta ársfjórðungi 2025. Þar af benda bráðabirgðatölur til þess að skatttekjur séu að aukast um 1,9% á tímabilinu á meðan aðrar tekjur hins opinbera aukast um 11,5%. „Hærri arðgreiðslur frá fyrirtækjum í eigu ríkissjóðs eru helsta skýring á aukningu í öðrum tekjum hins opinbera.“ Áætlað er að heildarútgjöld hafi aukist um 8,3% á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þar vegur þyngst að áætluð útgjaldaaukning vegna félagslegra tilfærsla til heimila er 13,0%, vegna vaxtagjalda 20,4% og 8,3% vegna samneyslu. Hagstofan áréttar að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðast við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn (ESA2010). Með hinu opinbera teljist m.a. lánasjóðir ríkissjóðs sem hafa veruleg áhrif á vaxtatekjur og gjöld þess.

Share this article