Stjórnvöld hafa hert taumhald í hagstjórn með viðeigandi hætti til að bregðast við innlendum eftirspurnarþrýstingi. Þrátt fyrir það hafa launahækkanir verið töluverðar, verðbólga haldist mikil og verðbólguvæntingar háar. Jafnframt hefur aukin alþjóðleg óvissa vegna átaka í Mið-Austurlöndum aukið hættu á að hagvöxtur verði minni en ella og að verðbólga verði meiri. Þetta er meðal þess sem fram kemur í árlegri úttekt sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem kynnt var á fundi í Safnahúsinu í morgun. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, undir forystu Metodij Hadzi-Vaskov, átti fundi í maí og byrjun júní með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra og öðrum fulltrúum hins opinbera og einkageirans í tengslum við árlega úttekt sjóðsins á íslensku efnahagslífi. Verðbólgumarkmið á að nást í upphafi árs 2028 Sendinefndin varar við minnkandi hagvexti og vaxandi verðbólgu. Hægt hefur á efnahagsumsvifum á undanförnum árum en verðbólguþrýstingur hefur haldist mikill. Nefndin býst þó við efnahagsbata, studdum af viðsnúningi í utanríkisviðskiptum, en gert er ráð fyrir að verðbólga aukist vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Spáð er hægri aukningu hagvaxtar og að hann verði 1,8% árið 2026 og 2,1% árið 2027. Efnahagsumsvif eru studd af viðsnúningi í útflutningi og batnandi fjármálaskilyrðum. Talið er að meðalverðbólga verði áfram mikil eða 5,2% árið 2026 og 3,2% árið 2027, áður en hún nálgast markmið í upphafi árs 2028. Hagvöxtur til meðallangs tíma styðst við aukna framleiðni sem stafar af áframhaldandi fjölbreytni í útflutningsgreinum, m.a. í fiskeldi, líftækni, endurnýjanlegri orku og stafrænum innviðum, að því gefnu að áfram verði unnið að því að efla samkeppnishæfni, draga úr skorti á sérhæfðu vinnuafli og styðja nýsköpun. Meginverkefni hagstjórnarinnar að mati sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru að koma verðbólgu niður í 2,5% markmið og auka viðnámsþrótt gegn áföllum með því að auka svigrúm í ríkisfjármálum og halda áfram kerfislegum umbótum.