Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði hafnar því að félagið hafi í verulegum mæli fjárfest í rekstri sem sé ótengdur sjávarútvegi. Félagið hefur sent frá sér áréttingu vegna nýlegrar skýrslu Hagfræðistofnunar um eignarhald í sjávarútvegi. Þar kemur fram, að sögn Loðnuvinnslunnar, að félagið, dótturfyrirtæki þess og eigendur hafi á árunum 2014 til 2024 fjárfest í rekstri öðrum en útgerð fyrir 5.301 milljón króna. Loðnuvinnslan segir þessa framsetningu gefa ranga mynd af fjárfestingum félagsins. „Loðnuvinnslan telur rétt að árétta að félagið, dótturfyrirtæki þess og stærsti eigandi, Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, hafa fyrst og fremst einbeitt sér að fjárfestingum innan sjávarútvegs og tengdri starfsemi,“ segir í áréttingu félagsins. Að sögn Loðnuvinnslunnar snúa fjárhæðirnar sem vísað er til í skýrslunni nánast alfarið að fjárfestingum hluthafa í félaginu sem fer með 1,67% hlut. Þær fjárfestingar hafi numið um 5.091 milljón króna á tímabilinu. „Fjárfestingar þessara aðila á tímabilinu upp á um 5.091 milljón króna eru Loðnuvinnslunni og rekstri hennar algjörlega óviðkomandi,“ segir í áréttingunni. Félagið segir eigin fjárfestingar í verkefnum sem séu ótengd sjávarútvegi vera fáar og óverulegar. „Þar er fyrst og fremst um að ræða samfélagsleg verkefni sem snúa að nýsköpun og stuðningi við uppbyggingu í þeim landsfjórðungi sem fyrirtækið starfar í,“ segir í yfirlýsingunni. Undir áréttinguna skrifar Garðar Svavarsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar. Loðnuvinnslan er eitt stærsta fyrirtækið á Fáskrúðsfirði og er stærsti hluthafi félagsins Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga með 83,26% hlut. Aðrir stærstu hluthafar í árslok 2025 voru Lífsverk lífeyrissjóður með 5,57% hlut og Sjóvá-Almennar tryggingar með 3,64% hlut. Hluthafinn sem Loðnuvinnslan vísar til í áréttingunni er Olympus hf., sem fer með 1,67% hlut í félaginu. Félagið er skráð í Hafnarfirði og er forráðamaður þess Guðmunda Þórunn Gísladóttir. Samkvæmt skráningu er starfsemi félagsins flokkuð sem frysting fiskafurða, krabbadýra og lindýra.