Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði hefur á Facebook-síðu sinni sett fram áréttingu vegna skýrslu Hagfræðistofnunar um eignarhald í sjávarútvegi. „Í nýlegri skýrslu Hagfræðistofnunar kemur fram að Loðnuvinnslan, dótturfyrirtæki hennar og eigendur hafi á árunum 2014-2024 fjárfest í rekstri öðrum en útgerð fyrir 5.301 milljón króna. Loðnuvinnslan telur rétt að árétta að félagið, dótturfyrirtæki þess og stærsti eigandi, Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, hafa fyrst og fremst einbeitt sér að fjárfestingum innan sjávarútvegs og tengdri starfssemi. Þær upphæðir sem vísað er til í skýrslunni snúa nánast alfarið að fjárfestingum hluthafa í Loðnuvinnslunni sem fer með 1,67 % hlut. Fjárfestingar þessa aðila á tímabilinu upp á um 5.091 milljónir króna eru Loðnuvinnslunni og rekstri hennar algjörlega óviðkomandi. Fjárfestingar Loðnuvinnslunnar í verkefnum ótengdum sjávarútvegi eru fáar og óverulegar. Þar er fyrst og fremst um að ræða samfélagsleg verkefni sem snúa að nýsköpun og stuðning við uppbyggingu í þeim landsfjórðungi sem fyrirtækið starfar í.“ Undir áréttinguna skrifar Garðar Svavarsson framkvæmdastjóri fyrir hönd Loðnuvinnslunnar hf. Hlutafé Loðnuvinnslunnar hf. er 700 milljónir kr. og voru hluthafar í árslok 2025 146 talsins. Þeir stærstu eru Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga (83,26%), Lífsverk lífeyrissjóður (5,57%), Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (3,64%) og aðrir minna. Hluthafi með 1,67% hlut er Olympus hf. sem skráð er í Hafnarfirði. Forráðamaður félagsins er Guðmunda Þórunn Gísladóttir og flokkun starfseminnar er frysting fiskafurða, krabbadýra og lindýra.