Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Var nýr sumarslagari að koma með póstinum?

  • What: New music release by Birnir and GDRN
  • Impact: Music industry update
Read Full Article →

Birnir ásamt GDRN – Vilt fá Á miðnætti sendi tónlistarfólkið Birnir og GDRN frá sér lagið Vilt fá, sem myndi flokkast sem seyðandi rafpopp. Lagið vinna þau með Marteini Bangerboy Hjartarsyni en hljóðblöndun og jöfnun var í höndum Starra Snæs Valdimarssonar. Love Guru og Anna Margrét – Upp og áfram! Lagið Upp og Áfram! er það nýjasta frá útihátíðarprinsinum Love Guru. Hann vinnur það með söngkonunni Önnu Margréti og vini sínum N3dek frá Marokkó. Textinn fjallar um íslenska sumarið eða sumardaginn og hann sjálfan eins og helstu verk hann til þessa. Undiraldan fimmtudaginn 11. júní Maður gæti spurt sig að því að þegar maður sér lagalista Undiröldunnar þessa vikuna þar sem er boðið upp á sólargeisla frá Birni ásamt GDRN, Emmsjé Gauta ásamt KK, Ásgeiri Trausta og ýmsum fleirum. Una og Sara – Hendur upp í loft Söngkonurnar Una og Sara hafa sent frá sér lagið Hendur upp í loft. Höfundur lagsins, Árni Hermann Björgvinson, sá þær á TikTok og fannst þær passa vel við þetta lag og þar sem þær hefur alltaf langað til að gefa út partýlag slógu þær til. Raricryptobillionaire – Move yo body Ari Jakosson kallar sig Raricryptobillioner hefur verið að semja og gefa út tónlist rúm átta ár. Nýjasta lagið hans er Move Yo Body. Lagið segir hann að marki nýjan kafla á tónlistarferli sínum þar sem hann sækir innblástur í franska hústónlist tíunda og fyrsta áratugarins eins og Daft Punk og Cassius. Urmull og Kraðak – Paradís Hljómsveitin Urmull & Kraðak samanstendur af Helga Egilssyni og Ragnari Jóni Ragnarssyni sem kallar sig Huma. Þeir félagar hafa sent frá sér lagið Paradís sem er frumsamið. Það er Óskar Þormarsson sem spilar á trommur. Jónas Björgvinsson og Magnús Þór – Í dag Lagið Í dag er smáskífa af væntanlegri 10 laga sólóplötu sem Jónas Björgvinsson ætlar að gefa út um miðjan október. Lagið sömdu Jónas og Magnús Þór Sigmundsson saman. Þeir syngja saman sem dúett en Jónas samdi lagið og Magnús Þór gerði textann sem er um vináttu, lífið og tilveruna og mikilvægi þess að dvelja í núinu í öllu dagsins amstri. Undiraldan þriðjudaginn 9. júní Maður gæti spurt sig að því að þegar maður sér lagalista Undiröldunnar þessa vikuna þar sem er boðið upp á sólargeisla frá Birni ásamt GDRN, Emmsjé Gauta ásamt KK, Ásgeiri Trausta og ýmsum fleirum. Emmsjé Gauti, KK – Þúsund fleiri ár Frá Emmsjé Gauti og KK kemur lagið Þúsund fleiri ár sem varð til á nokkrum mismunandi hittingum. Höfundarnir eru fimm; Emmsjé Gauti, Halldór Gunnar, Klara Elías, Hákon Guðni og KK. Þetta er ástarlag sem er samið frá hjartanu og hefur verið tilbúið í meira en ár, segir Gauti. Ásgeir Trausti – Skýjaborg Það nýjasta frá Ásgeiri Trausta er lagið Skýjaborg, eftir hann við texta Júlíusar Aðalsteins Róbertssonar. Lagið er flutt af einvalaliði hljóðfæraleikara og tekið upp í Hljóðrita og Stúdíó Sýrlandi. Valborg Ólafsdóttir – Bittersweet Æskan lítur ólíkt út hjá okkur öllum en við áttum hana öll og það er nákvæmlega það sem lagið Bittersweet með Valborgu Ólafsdóttur fjallar um, minningarnar sem leynast í kyrrðinni og árin sem liðu alltof hratt hjá. Haraldur Ari Stefánsson – Máninn Leikarinn og tónlistarmaðurinn Haraldur Ari Stefánsson hefur sent frá sér lagið Máninn af hans fyrstu sólóplötu sem er væntanleg í haust. Lagið er frumsamið og Haraldur Ari spilar á gítar en Sveinbjörn Thorarensen á hljóðgervla og trommur ásamt því að stýra upptökum. Von Darko – of Fighting Von Darko hefur sent frá sér plötuna Long Division. Þetta er alþjóðleg indí-rokkhljómsveit sem var stofnuð í Reykjavík snemma árs 2020. Tónlist hennar einkennist af blöndu af bresku indí-popprokki, draumkenndu shoegaze og dökkum nýbylgjuhljómi. Dead Sea Apple – Cut my Finger Hljómsveitin Dead Sea Apple hefur sent frá sér lagið Cut My Finger eftir Harald Vigni Sveinbjörnsson. Lagið var tekið upp 2006 en kom í fyrsta skipti út á streymisveitum 15. maí í tilefni af 30 ára afmæli frumburðar Dead Sea Apple, Crush, sem kom út 1996. Sveitin heldur tónleika að því tilefni í Bæjarbíói Hafnarfirði 3. september. Adam J, Zon of Zigurthor – 2 for 1 Zon of Zigurthor sendi á dögunum frá sér lagið 2 for 1 sem hann gerir með Adam J. Lagið segir hann að sé melódískt og poppað pönk og eitt af lögunum á væntanlegri plötu hans, Here’s To The Good Crimes! Undiraldan lagalisti

Share this article