Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Gildi og Festa hefja sam­einingar­viðræður

  • What: Discussions about merging life insurance funds
  • Impact: Financial sector update
Read Full Article →

Stjórnir Gildis-lífeyrissjóðs og Festu lífeyrissjóðs hafa ákveðið að hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. „Í viðræðunum verður m.a. skoðað hvort sameining sé hagfelldur kostur fyrir sjóðfélaga beggja sjóða sem og hvort sameining geti skilað sér í aukinni stærðarhagkvæmni, bættri þjónustu og enn öflugri sjóði til framtíðar,“ segir í sameiginlegri tilkynningu stjórna lífeyrissjóðanna. „Fyrir liggur að sjóðirnir eru líkir að eðli og uppbyggingu, meðal annars með mjög sambærilegt réttindakerfi og samþykktir.“ Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næst stærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs. Eignir Gildis námu 1.225 milljörðum og 347 milljörðum króna. Viðræður Gildis og Festu fylgja í kjölfar annarra sameininga í lífeyrissjóðakerfinu. Almenni og Lífsverk sameinuðust um síðustu áramót og nýlega hóf sameinaður sjóður könnunarviðræður við SL lífeyrissjóð um mögulega sameiningu. Þá sameinuðust Frjálsi og Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands um síðustu áramót, og jafnframt er unnið að sameiningu Frjálsa og Lífeyrissjóðs bænda. Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Birta lífeyrissjóður hófu einnig könnunarviðræður í janúar sl. en ákváðu í síðasta mánuði að ganga ekki til formlegra samrunaviðræðna.

Share this article