- What: EasyJet rejects Castlelake's third takeover offer
- Impact: Company's board rejected the offer due to valuation concerns
Breska lággjaldaflugfélagsins EasyJet hefur hafnað þriðja tilboði bandaríska fjárfestingafyrirtækisins Castlelake, sem nú hefur ákveðið að birta nýjasta tilboð sitt opinberlega. Frá þessu greinir Financial Times. „Í kjölfar þess að þremur tilboðum hefur verið hafnað af stjórn EasyJet, og í ljósi trega félagsins til samtals, vill Castlelake nú opinbera tilboðið, í því skyni að hluthafar hafi kost á að kynna sér efnið og taka afstöðu.“ Nýjasta tilboðið metur Easyjet á 4,7 milljarða punda, og var 59% yfir markaðsverði áður en yfirtökuáform Castlelake urðu opinber. Stjórn EasyJet segir að tilboði Castlelake hafnað á grundvelli horfa um bætta afkomu á næstu misserum, og jafnframt að kaupverðið endurspeglaði ekki framtíðarverðmæti félagsins. Stjórnin sagðist jafnframt efast um skuldbindingar og skilyrði tilboðsins og bætti við að tímasetningin gæfi til kynna að um tækifærissinnað tilboð væri að ræða. EasyJet telur Castlelake vera að nýta sér tímabundna lægð í hlutabréfaverði félagsins, sem meðal annars hefur verið rakin til óvissu í fluggeiranum vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Í aðdraganda viðræðna hafði Castlelake ráðið til sín fyrrum stjórnendur úr evrópskum flugrekstri, líkt og Peter Bellow sem áður gegndi stjórnunarstöðu hjá EasyJet, og Mark Breen, fyrrum stjórnanda hjá Arajet. Sjá einnig Evrópskar samkeppnisreglur torveldi yfirtökur Ætla má að ráðstöfun þessi komi til vegna reglna Evrópusambandsins um eignarhald flugfélaga, en samkvæmt þeim þurfa evrópskir aðilar að fara með meirihluta eignarhalds og yfirráða, til að flugfélag haldi flugréttindum sínum. Castlelake hefur þar að auki lagt áherslu á að vilja fylgja evrópsku regluverki og að sérstakt eignarhaldsfyrirkomulag muni tryggja að svo verði. Castlelake, sem er með höfuðstöðvar í Minneapolis, hefur áður tekið virkan þátt í fjárfestingum innan fluggeirans. Árið 2023 keypti félagið 32% hlut í endurskipulagningarferli SAS og á Castlelake einnig 2,14% hlut í easyJet.