Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

HM er gull­gæs FIFA

Read Full Article →

Heimsmeistaramót karla hefur í gegnum árin verið helsta gullgæs FIFA og er ekki að breytast. Áætlað er að efnahagsleg áhrif mótsins sem haldið er í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada muni tæpa tælega 10 þúsund milljörðum króna. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Sævar Þór Sveinsson ritaði fyrir Íslandsbanka. FIFA skipuleggur rekstur sinn út frá fjögurra ára reikningstímabilum sem hefjast og ljúka með heimsmeistaramóti karla. Á yfirstandandi reikningstímabili, 2023-2026, áætlar FIFA að tekjurnar verði rúmlega 1.600 milljarðar króna. Á síðasta tímabili voru tekjur FIFA um 940 milljarðar króna og hafa þær því aukist um rúmlega 70% á milli tímabila að nafnvirði. Þessa tekjuaukningu má helst rekja til tveggja þátta: annars vegar til stærra heimsmeistaramóts karla, þar sem þátttökuþjóðum hefur verið fjölgað úr 32 í 48, og hins vegar vegna nýs fyrirkomulags á heimsmeistaramóti félagsliða karla. Stökkið í tekjum FIFA á þessu tímabili er töluvert meira en á undanförnum tímabilum. Tekjuaukningin milli tímabilanna 2015-2018 og 2019-2022 var 18% að nafnvirði, en þar á undan var hún 12% að nafnvirði. Tekjuaukningin var þó meiri á milli tímabila fyrir tæpum tveimur áratugum þegar hún nam 59% að nafnvirði á milli tímabilanna 2003-2006 og 2007-2010. Miðasölutekjur FIFA margfaldast Þegar reikningstímabilin 2019-2022 og 2023-2026 eru borin saman blasir við að mesta tekjuaukninguna er að finna í miðasölutekjum. Miðaverð á leiki á heimsmeistaramótinu í sumar hefur verið mikið til umfjöllunar síðustu mánuði, enda er það töluvert hærra en á síðustu heimsmeistaramótum. Sá tekjuliður hjá FIFA hefur farið úr 118 milljörðum króna á tímabilinu 2019-2022 í 386 milljarða króna á tímabilinu 2023 – 2026, hækkun sem nemur rúmlega 226%. Miðum er skipt niður í fjóra verðflokka þar sem flokkur 1 er dýrastur og flokkur 4 er ódýrastur. Miðaverðin í ár eru margfalt hærri en á síðustu mótum. Ódýrasti miðinn á úrslitaleikinn er sem dæmi tíu sinnum dýrari en á síðasta móti, árið 2022. Ef úrslitaleikir á öðrum íþróttaviðburðum eru skoðaðir má sjá að ódýrasta miðaverðið er langhæst á úrslitaleik heimsmeistaramótsins, nemur 253 þúsundum króna. Það er tæplega tvöfalt hærra en ódýrasti miðinn á Ofurskálina sem haldin var í febrúar. Tekjur vegna heimsmeistaramóts félagsliða karla, sem fór fram sumarið 2025, námu 249 milljörðum króna. Tekjur af fyrri heimsmeistaramótum félagsliða hafa ekki verið tilgreindar sérstaklega af FIFA, en ljóst er að um töluverða tekjuaukningu er að ræða. Jafnframt vekur það athygli að tekjur af sérleyfisréttindum minnka á milli reikningstímabila. Það má meðal annars rekja til þess að tölvuleikjaframleiðandinn Electronic Arts, sem framleiðir hinn vinsæla fótboltaleik „EA Sports FC“ – leik sem áður bar nafnið „FIFA“ – sleit samstarfi sínu við knattspyrnusambandið árið 2022. HM karla er helsta tekjulind FIFA Heimsmeistaramót karla hefur í gegnum árin verið helsta gullgæs FIFA. Á reikningstímabilinu 2019-2022 mátti rekja 83% af tekjum FIFA til heimsmeistaramótsins í Katar og sama gilti á tímabilinu 2015 - 2018 þegar mótið fór fram í Rússlandi. Hæsta hlutfallið var á árunum 2007 - 2010, þegar tekjur af heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku námu 93% af heildartekjum FIFA. FIFA hefur ekki sérstaklega gefið upp áætlaðar tekjur af heimsmeistaramótinu í sumar. Þær koma þó að öllum líkindum að mestu leyti á því ári sem mótið er haldið. Ef einungis er miðað við þær tekjur sem FIFA gerir ráð fyrir á árinu 2026 nemur hlutfall HM-tekna 69% af heildartekjum FIFA á tímabilinu 2023-2026. Helsta ástæða þess að hlutfallið lækkar svona hressilega milli tímabila eru tekjur af endurnýjuðu heimsmeistaramóti félagsliða karla sem fór fram sumarið 2025. Útgjöld FIFA tvöfaldast Á yfirstandandi reikningstímabili, 2023 - 2026, áætlar FIFA að útgjöldin nemi 1.609 milljörðum króna. Á síðasta reikningstímabili námu útgjöld sambandsins 786 milljörðum króna og hafa þau því rúmlega tvöfaldast á milli tímabila. Ef tímabilið 2019-2022 er borið saman við tímabilið 2023-2026 má sjá að útgjöldin hækka mest vegna keppna og viðburða. Líkt og með tekjuaukninguna má helst rekja þessa aukningu til stærra heimsmeistaramóts karla og nýs fyrirkomulags á heimsmeistaramóti félagsliða karla. FIFA leggur út 468 milljarða vegna HM FIFA gerir ráð fyrir því að leggja út 468 milljarða króna vegna heimsmeistaramótsins 2026, en fyrir síðasta heimsmeistaramót lagði FIFA út 228 milljarða króna. Útgjöld FIFA vegna mótsins eru því að tvöfaldast á milli móta og hafa aldrei verið eins há. Athyglisvert er þó að heimsmeistaramótið í Brasilíu árið 2014 var nokkuð kostnaðarsamt fyrir FIFA – umfram það sem upphaflega var gert ráð fyrir. Hinn aukni kostnaður skýrist af nokkrum þáttum. FIFA jók meðal annars framlög sín í samfélagssjóð sem var stofnaður í tengslum við mótið. Hlutverk sjóðsins er að efla knattspyrnu í Brasilíu með því að byggja velli og tengda innviði, svo eitthvað sé nefnt. Að auki þurfti FIFA að leggja út aukinn kostnað vegna sjónvarpsútsendinga og var verðlaunafé mótsins hækkað. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article