Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

FIFA stofnar 20 milljarða dala félag til að laða að fjár­festa

Read Full Article →

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hyggst selja um 20% hlut í nýju viðskiptafélagi sem metið er á um 20 milljarða dala. Með því vill forseti sambandsins, Gianni Infantino, nýta enn frekar tekjumöguleika heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, sem fór fram í sumar og hefur bæði reynst gríðarlega arðbært og umdeilt. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. FIFA, sem er skráð sem sjálfseignarstofnun í Sviss, sagði í dag að unnið væri með JPMorgan að því að afla allt að 4,2 milljarða dala á þessu ári með því að fá utanaðkomandi fjárfesta að nýja félaginu, FIFA Forward Enterprise. Joshua Kushner, fjárfestir og bróðir Jared Kushner, tengdasonar Donalds Trump Bandaríkjaforseta, er sagður í viðræðum um að leiða fjárfestinguna í gegnum sjóð sinn Thrive Eternal. Áformin eru nýjasta skrefið í þeirri viðskiptavæðingu sem einkennt hefur FIFA undir stjórn Infantino síðasta áratuginn. Hann hefur einnig ræktað náin tengsl við Trump og veitti honum fyrstu „friðarverðlaun“ FIFA í desember, sem gagnrýnendur sögðu stangast á við reglur sambandsins um pólitískt hlutleysi. FIFA segir að FIFA Forward Enterprise verði dótturfélag sem haldi utan um viðskipta- og mótahaldsstarfsemi sambandsins. Greg Maffei, fyrrverandi forstjóri Liberty Media, ráðleggur sambandinu um áformin. UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, gagnrýndi áformin harðlega og sagði að fótboltinn væri ekki eign FIFA til að selja. FIFA hyggst greiða 211 aðildarsamböndum sínum 20 milljónir dala hverju í eingreiðslu. Árlegar greiðslur til þeirra myndu síðan hækka úr 2 milljónum dala í 5 milljónir á árunum 2027 til 2030. Tillögurnar þurfa samþykki meirihluta aðildarsambandanna. Ný nálgun FIFA á mótinu í sumar, meðal annars hærra miðaverði og hlutdeild í endursölu miða, hefur verið harðlega mótmælt og sætt skoðun í nokkrum ríkjum innan Bandaríkjanna. Þá hefur Jamie Raskin, leiðtogi demókrata í dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar, krafist viðtals við Infantino vegna rannsóknar á tengslum FIFA og Trump-stjórnarinnar. Talið er að FIFA hafi aflað að minnsta kosti 13 milljarða dala á nýyfirstöðnu fjögurra ára rekstrartímabili sem er aukning frá 7,6 milljörðum dala tekjum síðasta tímabils. Sambandið skoðar einnig að stækka bæði HM félagsliða og heimsmeistaramótið sjálft, jafnvel úr 48 liðum í 64, þrátt fyrir gagnrýni um að leikjadagatalið sé þegar komið að þolmörkum.

Share this article